Delajod er Frakki og hefur því aðallega dæmt í frönsku 1. deildinni. Utan vallar starfar hann sem fasteignasali og það kom honum í ákveðið klandur síðasta vetur þegar ósáttir stuðningsmenn Monaco hringdu í hann og sendu honum skilaboð, eftir 2-2 jafntefli við Marseille þar sem Delajod rak tvo leikmenn Monaco af velli.
Delajod viðurkenndi að hafa ekki átt sína bestu frammistöðu í leiknum en mátti þola óhóflegt níð:
„Símanúmerið mitt var opinbert vegna starfa minna sem fasteignasali og síminn hringdi á tveggja mínútna fresti. Þetta voru nafnlaus símtöl þar sem verið var að móðga mig. Ég fékk líka fullt af ljótum skilaboðum á samfélagsmiðlum og varð að biðja umboðsskrifstofu mína um að sjá um að eyða hatursskilaboðum,“ sagði Delajod þegar hann opnaði sig um málið.
Delajod hefur litla reynslu af því að dæma A-landsleiki en hefur dæmt nokkra vináttulandsleiki og sá svo um að dæma leik Rúmeníu og Kósovó í undankeppni EM í fyrra. Þar fór gula spjaldið oft á loft eða alls tíu sinnum, og það rauða fylgdi einu sinni í kjölfarið.
Delajod hefur einnig dæmt leiki í Sambandsdeild Evrópu og Evrópudeildinni, en hefur eins og fyrr segir langmesta reynslu af því að dæma í franska boltanum.