„Leikmaður Keflavíkur brotlegur í aðdragandanum“ Atli Arason skrifar 12. maí 2022 23:17 Brynjar Hlöðversson og félagar í Leikni hafa byrjað tímabilið í Bestu deildinni illa. vísir/vilhelm Brynjar Hlöðversson, leikmaður Leiknis, var langt því frá að vera ánægður eftir 3-0 tap gegn Keflavík í fimmtu umferð Bestu deildarinnar í kvöld. „
Fyrstu viðbrögð eru reiði, pirringur og bara almennt mjög sár út í frammistöðu okkar í kvöld. Við hefðum átt að sýna einhvern karakter í þessum leik, við vorum eftir á í fyrsta bolta, öðrum bolta, tæklingum og fleira. Ég er mjög svekktur út í liðið,“ sagði Brynjar Hlöðversson, leikmaður Leiknis, í viðtali við Vísi eftir leik. Keflavík fékk fyrstu tvö mörk leiksins á silfurfati frá Leikni. Brynjari fannst fyrra markið þó ekki eiga að standa þegar Bjarki Aðalsteinsson og Viktor Freyr Sigurðsson, leikmenn Leiknis lenda saman inn í vítateig gestanna. „Það var leikmaður Keflavíkur brotlegur í aðdragandanum. Mér fannst hann brjóta á Bjarka og það ætti að vera aukaspyrna en kannski sá ég þetta ekki nógu vel. Í öðru markinu kixa ég boltann, ég er með sólina í augunum en þetta var alltof mikill klaufagangur hjá mér." Veðrið spilaði sitt hlutverk í leiknum í kvöld eins og svo oft áður í Keflavík. Vindurinn stóð á annað markið allan leikinn og í síðari hálfleik var sólin komin lágt á loft sem augljóslega truflaði leikmenn Leiknis eitthvað. „Ég veit ekki hvort við eigum að reyna spila minni fótbolta fyrir vikið. Þetta var ekkert skemmtilegur fótboltaleikur fyrir áhorfendur en svona er boltinn stundum á Íslandi. Veðrið getur spilað inn í en við þurfum að geta spilað í svona aðstöðu,“ svaraði Brynjar aðspurður út í aðstöðunnar í Keflavík í kvöld. Leikmenn Leiknis hafa enn ekki skorað mark í deildinni eftir fimm umferðir. Eina mark liðsins til þessa er sjálfsmark Eiðs Arons, leikmanns ÍBV. Næsti leikur Leiknis er gegn Fram, sem er leikur sem Breiðhyltingar verða að sækja sigur í til að lyfta sér úr kjallara Bestu deildarinnar. Brynjar kallar eftir því að hann og liðsfélagar sínir mæti betur til leiks á móti Fram á mánudaginn. „Við þurfum bara að byrja á því að mæta til leiks. Við þurfum að mæta klárir frá fyrstu mínútu og geta gefið allt í leikinn,“ sagði Brynjar Hlöðversson, leikmaður Leiknis.
Besta deild karla Leiknir Reykjavík Keflavík ÍF Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Sjá meira