Náð að „koma á stöðugleika“ umhverfis Bakhmút

Úkraínsk yfirvöld segja að herinn hafi náð að „koma stöðugleika“ í kringum borgina Bakhmút. 

Áður en stríðið hófst bjuggu um 70 þúsund manns í borginni. Flest allir íbúar hafa flúið Bakhmút eftir blóðuga bardaga sem hafa staðið yfir í meira en sjö mánuði. 

Hers­höfðing­inn Val­e­rí Zaluzhní ræddi við Tony Radakin, yfirmann breska hersins, í síma í gær. 

Zaluzhní sagði eftir símafundinn að staðan á vígstöðunum við Bakhmút væri gríðarlega erfið en hernum hefði tekist að koma á stöðugleika umhverfis borgina. 

Samkvæmt breska varnarmálaráðuneytinu hefur sókn Rússa „að mestu stöðvast“. Í yfirlýsingu ráðuneytisins sagði að það væri meðal annars vegna gríðarlegs mannfalls rússneskra hermanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert