Flestar hugmyndir frá Breiðholti

Horft yfir Breiðholt í forgrunni.
Horft yfir Breiðholt í forgrunni.

Hverfið mitt 2020 hugmyndasöfnun er nú haldin níunda árið í röð og hefur gengið vel sem af er. Mikil aðsókn hefur verið á vefinn hverfidmitt.is en alls hafa 55.000 manns heimsótt vefinn og 7.720 hafa skráð sig þar inn og tekið beinan þátt í innsendingu og mótun á 936 hugmyndum.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fjöldi tillagna frá hverfunum.
Fjöldi tillagna frá hverfunum. Ljósmynd/Aðsend

Nú þegar nokkrir dagar eru eftir af hugmyndasöfnuninni trónir Breiðholtið á toppnum með flestar hugmyndir, eða 139 talsins. Fast á hæla Breiðholts kemur Háaleiti-Bústaðir með 131 hugmynd og í þriðja sæti er Grafarvogur með 117 hugmyndir.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd koma Laugardalur og Árbær næst með liðlega eitt hundrað hugmyndir hvort hverfi.

Hugmyndasöfnunin stendur til 20. janúar næstkomandi og er því vika til stefnu til að senda inn fleiri hugmyndir í hverfum borgarinnar. Reykjavíkurborg hvetur íbúa til að láta ekki hugmyndir liggja eftir heldur nýta tækifærið til að koma með góðar hugmyndir sem bæta hverfin í borginni.

Á meðal hugmynda sem hafa orðið að veruleika eru:

Árbær - kaldur pottur í Árbæjarlaug.

Breiðholt - nýtt hreysti- og klifursvæði nálægt Breiðholtslaug.

Grafarholt og Úlfarsárdalur – nýr mini-golfvöllur í Leirdal.

Grafarvogur - ærslabelgur við Gufunesbæ.

Háaleiti og Bústaðir - nýtt útiæfingasvæði við Víkingsheimilið.

Hlíðar - klifursteinn á Klambratúni.

Kjalarnesi - aparóla í Grundarhverfi.

Laugardalur -  frisbígolfvöllur.

Miðborgin -  bekkjum fjölgað og bætt við gróður í Hljómskálagarðinum.

Vesturbænum - há róla við Ægissíðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert