„Góðar líkur“ á að veiran hafi verið upprætt innanlands

Sóttvarnalæknir segir að þó að góðar líkur séu á því að veiran hafi verið upprætt innanlands sé nauðsynlegt að halda vöku sinni því aðeins eitt afbrigði, einn einstaklingur, getur sett faraldur af stað. 90 hafa greinst með breska afbrigðið hér á landi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.
Auglýsing

„Við lifum núna á svo­lítið skrítnum tím­um,“ sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Við erum að berj­ast við nátt­úru­vá  á ýmsum sviðum en við vitum hvað þarf að gera til að var­ast alvar­legar afleið­ing­ar. Núna ríður á að við stöndum okkur og beitum þeim aðferðum sem við vitum að duga.“



Alma Möller land­læknir sagði að staðan á far­aldr­inum inn­an­lands væri góð, sér­stak­lega þegar litið er til nágranna­land­anna þar sem staðan er víða slæm og „menn ótt­ast nýja bylgju“. Sá ótti skýrist m.a. af nýjum afbrigðum veirunnar sem eru meira smit­and­i.  „Þess vegna mik­il­vægt að gleyma okkur ekki í vel­gengn­inni og höldum áfram aðgerðum á landa­mærum og höfum líka þann varnagla áfram að sinna ein­stak­lings­bundnum sótt­vörn­um. Ef hún skyldi sleppa inn eða ef húnn lægi í leyni hérna, sem er ekki úti­lok­að.“



Bæði hún og Þórólfur ítrek­uðu að fólk gleymdi sér ekki þó að mikið gangi á á Reykja­nesi.

Auglýsing



„Kannski svo­lítið erfitt að koma inn núna með upp­lýs­inga­fund um covid vegna óró­ans og yfir­vof­andi eld­goss,“ sagði Þórólf­ur. „Það er nauð­syn­legt að við höldum vöku okkar og missum ekki ein­beit­ingu okkar á verk­efn­inu um covid, svo covid fari ekki að læð­ast aftan að okkur með alvar­legum afleið­ing­um.“



Eng­inn greind­ist með veiruna inn­an­lands í gær. Frá 19. febr­ú­ar, þegar breyt­ingar voru gerðar á fyr­ir­komu­lagi á landa­mærum og ferða­menn krafðir um að fram­vísa nei­kvæðu COVID-­prófi við kom­una til lands­ins, hafa tveir greinst inn­an­lands og báðir voru þeir í sótt­kví.Alma Möller og Þórólfur Guðnason á fundi almannavarna í dag. Mynd: Almannavarnir



„Það gengur áfram vel að halda far­aldr­inum niðri inn­an­lands og ég tel að það séu góðar líkur á því að veiran hafi verið upp­rætt hér inn­an­lands, þó að við getum ekki verið vis­s,“ sagði Þórólf­ur. „Við erum áfram að greina veiruna  á landa­mærum og við þurfum að passa mjög vel að hún kom­ist ekki inn í land­ið.“



Eng­inn greind­ist á landa­mær­unum í gær en frá 19. febr­úar hafa 19 greinst með veiruna þar en aðeins ell­efu reynd­ust með virk smit. Um 1.600 nei­kvæðum covid-­prófum hefur verið fram­vísað við landa­mærin og hafa átta af þeim ein­stak­lingum greinst með veiruna í fyrri eða seinni skim­un. „Þetta segir okkur að nei­kvætt pcr-­próf er ekki full­komið til að halda veirunni frá þó að það sé árang­urs­ríkt að krefj­ast þess að ein­hverju leyti. Þannig að við þurfum að skoða þetta mjög vel.“

Tugir greinst með breska afbrigðið



Nítíu ein­stak­lingar hafa greinst með breska afbrigði veirunnar hér á landi, þar af tutt­ugu inn­an­lands en það er allt fólk sem teng­ist þeim sem greinst hafa á landa­mær­unum nánum bönd­um. Þá greind­ist einn með suð­ur­a­fríska afbrigðið á landa­mær­unum fyrir fjórum dög­um. Það er í fyrsta sinn sem það afbrigði grein­ist hér á landi.



Spurður hvort að til greina komi, í ljósi góðs árangur inn­an­lands, að aflétta frekar aðgerðum inn­an­lands, sagði Þórólfur að mjög var­lega yrði að fara í slíkt. „Það þarf bara eitt afbrigði af veirunni, einn ein­stak­ling, til að setja af stað far­ald­ur. Á þeim grunni tel ég að fara þurfi mjög var­lega í aflétt­ing­ar.“

Fólk gæti gleymt sér



Sagði hann hættu á því að vegna jarð­hrær­ing­anna á Reykja­nesi, sem gætu endað með eld­gosi, gæti fólk misst ein­beit­ing­una á sótt­vörnum vegna COVID. Vegna þess og nýrra afbrigða þurfum við nú að gæta okkar „extra vel“.



Ef eld­gos verður þá þurfum við að gæta okkar að fá ekki „smit ofan í það lík­a“.

Auglýsing


Í þess­ari viku verða um 7.000 manns bólu­settir og svip­aður fjöldi í þeirri næstu en þá er ráð­gert að byrja að bólu­setja fólk milli 70 og 80 ára.



Pfizer hefur birt dreif­ing­ar­á­ætlun fyrir apríl og sam­kvæmt henni koma hingað um 34 þús­und skammtar af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins í þeim mán­uði sem duga til að bólu­setja um 17 þús­und manns.



Þórólfur árétt­aði að fólk sem er bólu­sett sé ekki und­an­þegið sótt­varna­ráð­stöf­unum þar sem ekki er enn vitað hvort að bólu­settir geti borið veiruna og þar með smitað aðra. Rann­sóknir eru í fullum gangi á þessum þætti. „Á meðan svo er þurfa bólu­settir að und­ir­gang­ast sömu ráð­staf­anir og leið­bein­ingar og aðr­ir.“

Getum tekið Pollyönnu á þetta



Hvað varðar mögu­lega frek­ari nátt­úru­ham­far­ir  á Íslandi, ef til eld­goss kem­ur, minnti Þórólfur á að við Íslend­ingar værum ýmsu vanir og í okkur væri ótrú­leg seigla. Fólk tæki nátt­úru­öfl­unum af miklu æðru­leysi, „hvort sem það eru skrítnar og óút­reikn­an­legar veirur eða jarð­hrær­ing­ar.“



Alma sagði íslenska þjóð vel upp­lýsta. Hér störf­uðu margir góðir vís­inda­menn og sömu­leiðis við­bragðs­að­il­ar. „Við þurfum áfram að sýna sam­stöðu og yfir­vegun í því sem nú gengur yfir.“



Þórólfur sagði að við gætum tekið „Pollyönnu“ á ástand­ið. Það sé þó „alla vega ljós í myrkr­inu að staðan á far­aldr­inum er góð á meðan við erum að takast á við þessar jarð­hrær­ing­ar. Við getum glaðst yfir sumum hlut­u­m.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent