Innlent

Meiri þátt­taka í hverfiskosningum og meiri peningar í húfi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnisstjóri Hverfið mitt, segir að metþátttaka í íbúakosningunni sé í vændum.
Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnisstjóri Hverfið mitt, segir að metþátttaka í íbúakosningunni sé í vændum. Vísir

Mikil aukning hefur verið í þátttöku Reykvíkinga í íbúakosningunni Hverfið mitt sem lýkur á morgun. Verkefnisstjóri Hverfið mitt telur aukna þátttöku skýrast af auknum fjármunum sem lagðir eru í verkefnið og vilja íbúa til að hafa áhrif á umhverfi sitt. 

Íbúakosningin Hverfið mitt hefur farið fram síðan árið 2012 og er þetta nú níunda skiptið sem hún fer fram. Breytingar voru gerðar á verkefninu og fer kosningin nú fram annað hvert ár og hefur því fjármagn tveggja ára verið lagt saman.

Nú eru 850 milljónir króna í húfi fyrir íbúa sem skiptast á milli tíu hverfa Reykjavíkurborgar. Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnisstjóri Hverfið mitt, segir því hægt að kjósa um stærri hugmyndir nú en áður. 

Þessi sjónkíkir er meðal þeirra tillaga sem samþykkt var í hverfakosningu.Reykjavíkurborg

„Þegar það er svona mikið af peningum í boði og stórar tillögur sem greinilega brenna á íbúum þá deila íbúar þessu sjálfir og eru að fá nágranna, vini og ættingja til að taka þátt. Það vekur upp hverfisandann, sem er að spila mikið með okkur. Þegar eru líka svona stærri tillögur, sem munu setja stærri svip á hverfið og í mörgum tilvikum skapa hverfismiðjur þá vill fólk hafa áhrif,“ segir Eiríkur. 

„Það er alltaf gaman að sjá hvað íbúar eru tilbúnir að hafa áhrif á hverfin sín og við vinnum saman að því að gera hverfin okkar öll betri.“

Nú hafa meira en fimmtán þúsund Reykvíkingar tekið þátt í kosningunni og stefnir allt í að fjöldamet verði slegið í kosningaþátttöku.

Nú hafa á milli 10 og 20 prósent íbúa hverfa tekið þátt í Hverfakosningu Reykjavíkurborgar.Reykjavíkurborg

„Mörg hverfi hafa rifið sig rækilega í gang og eru með töluvert betri þátttökutölur en áður,“ segir Eiríkur og nefnir sem dæmi Kjalarnes, þar sem rúm 20 prósent íbúa hafa tekið þátt í kosningunni nú þegar.

Meðal þeirra tillaga sem hægt er að velja úr þetta árið er hjólabrettagarður í Vesturbæ, leik- og dvalarstæði við Grettisgötu, umbætur á grenndarstöðvum í Hlíðunum, yfirbyggður grillskáli í Laugardal, trjágöng við Háaleitisbraut, skólahreystibraut við Fellaskóla í Breiðholti, gróðursetningarátak í Norðlingaholti, leikvöllur fyrir vel fullorðið fólk í Grafarholti og Úlfarsárdal, nuddfoss í Grafarvogslaug og sjósundsaðstaða á Kjalarnesi. 

Vaðlaugin í Laugardal varð að veruleika eftir að íbúar kusu að hún skyldi gerð.Reykjavíkurborg

Eiríkur hvetur fólk til að leggja sitt af mörkum og taka þátt í kosningunni, enda geti tillögur úr Hverfinu mínu sett svip sinn á borgina.

„Um alla borg er að finna flott verkefni sem hafa notið vinsælda. Þar má nefna ærslabelginn í Gufunesi, vatnspósta víða um borgina, vegglistaverkið á Spennistöðinni og körfuboltavöllurinn í Bakkahverfinu í Breiðholti. Það hafa mörg flott verkefni orðið að veruleika, allt frá listaverkum yfir í nýja leikvelli, yfir í grænni Reykjavík,“ segir Eiríkur. 


Tengdar fréttir

Hverfið mitt 2.0

Hverfið mitt kosningin er hafin! Öll sem eru fædd árið 2006 eða fyrr og eiga lögheimili í Reykjavík, óháð ríkisborgararétti, tekið þátt í kosningunni. Kosningin er rafræn á hverfidmitt.is og stendur yfir í tvær vikur eða til hádegis 14. október.

Hálf­níu og níu hjá Borginni

Sem íbúi í Reykjavíkurborg hef ég oft velt því fyrir mér hvers vegna grenndargámarnir í hverfinu mínu sé ekki þrifnir oftar en raun ber vitni um. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ég ætti nú ekki bara að labba mig út og taka til hendinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×