Hvetur stjórnvöld til að huga betur að lagaheimildum sóttvarnaaðgerða Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. október 2020 12:42 Samkvæmt þeim upplýsingum sem forsætisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið veittu umboðsmanni Alþingis er vinna hafin við að endurskoða sóttvarnalög. Vísir/Vilhelm
Þar sem vinna er hafin við endurskoðun sóttvarnalaga telur Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, ekki tilefni að svo stöddu til að fjalla almennt um gildandi lagaheimildir til þeirra sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til vegna kórónuveirufaraldursins. Hins vegar kemur umboðsmaður þeirri ábendingu á framfæri að metið verði í hvaða mæli sé þörf á að bæta eins fljótt og kostur er úr þeim atriðum sem séu meira aðkallandi en önnur. „Mál af þessum toga kunna þó áfram að koma til umfjöllunar umboðsmanns vegna kvartana sem berast en þeim sem hafa borist fram að þessu hefur lokið þar sem kæruleiðir innan stjórnsýslunnar hafa ekki verið tæmdar,“ segir í umfjöllun um málið á vef umboðsmanns. Þar greinir frá bréfaskiptum umboðsmanns við forsætisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið varðandi lagaheimildir til sóttvarnaaðgerða vegna Covid-19. Á meðal þess sem kemur fram í bréfi umboðsmanns til ráðuneytanna sem sent var í lok síðustu viku er að stjórnvöld þurfi að gæta þess að fullnægjandi lagaheimildir séu þeim tiltækar til þeirra ráðstafana sem talin er þörf á að grípa til: Lagaleg umgjörð þurfi að vera skýr „Ég tek að lokum fram um þetta atriði að þótt vissulega hvíli á hlutaðeigandi stjórnvöldum ríkar skyldur til þess að gera nauðsynlegar sóttvarnaráðstafanir til að verjast og takast á við smitsjúkdóm af því tagi sem COVID-19 er þurfa stjórnvöld engu að síður, og sérstaklega þegar sleppir upphafsaðgerðum til að leggja mat á og takast á við farsótt, að gæta þess að fullnægjandi lagaheimildir séu þeim tiltækar til þeirra ráðstafana sem þau telja nauðsynlegt að grípa til. Heimild ráðherra til að hafa frumkvæði að flutningi lagafrumvarpa á Alþingi er einmitt ætlað að tryggja ráðherra úrræði til að kalla eftir þeim heimildum sem hann telur sig þurfa og eru ekki þegar í lögum eða eru ekki fyllilega skýrar. Þótt ég hafi talið tilefni til þess að hvetja stjórnvöld til þess að huga betur að lagaheimildum til umræddra ráðstafana hef ég ekki tekið afstöðu til þess hvort lagaheimildir hefur skort til einstakra ráðstafana. Það verður ekki gert nema skoða þau einstöku tilvik sem koma upp og meta aðstæður í ljósi þeirrar lagaheimildar sem reynir á, og þá m.a. með tilliti til þeirra hagsmuna sem sóttvarnaráðstöfunum og inngripum stjórnvalda er ætlað að þjóna og tilvist og líkum á smiti. Á vettvangi umboðsmanns Alþingis kann að reyna á slíkt við úrlausn þeirra kvartana sem berast,“ segir í bréfi umboðsmanns. Lagaleg umgjörð þessara mála verði að vera alveg skýr og það séu almannahagsmunir að lagaþrætur leiði ekki til þess að ónýta þann árangur sem sóttvarnaaðgerðum sé ætlað að ná: „Það leiðir hins vegar af eðli þeirra inngripa og áhrifa sem sóttvarnaaðgerðir vegna COVID-19 hafa haft bæði fyrir einstaklinga og atvinnufyrirtæki þar sem m.a. hefur reynt á stjórnarskrárvarin réttindi og fjárhagslegar afleiðingar að ég tel að stjórnvöld eigi að því er varðar lagalega umgjörð þessara mála að gæta þess fyrir sitt leyti að hún sé eins skýr og kostur er. Það er svo vitanlega Alþingis að taka endanlega afstöðu til þess hvaða heimildir stjórnvöld eigi að hafa í þessu efni. Það eru líka almannahagsmunir að lagaþrætur um þessi mál leiði ekki til þess að ónýta þann árangur sem sóttvarnaaðgerðum til að hemja bráðsmitandi sjúkdóm, sem í senn getur reynst lífi fólks hættulegur og sett starfsemi heilbrigðiskerfisins úr skorðum, er ætlað að ná,“ segir í bréfi umboðsmanns. Á vef umboðsmanns er jafnframt fjallað um kvartanir sem honum bárust vegna ákvörðunar um sóttkví annars vegar og grímuskyldu í framhaldsskólum hins vegar. Nánar má lesa um það hér.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Umboðsmaður Alþingis Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Fleiri fréttir Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Sjá meira