„Væri ekkert leiðinlegur dagur ef ég yrði Íslandsmeistari og kæmist inn á þing“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. september 2021 14:45 Gísli Eyjólfsson hefur leikið sinn síðasta leik á þessu tímabili. vísir/Hafliði Breiðfjörð Gísli Eyjólfsson verður í þeirri erfiðu stöðu að þurfa að fylgjast með samherjum sínum í Breiðabliki úr stúkunni í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Morgundagurinn verður viðburðarríkur fyrir Gísla en hann er einnig í framboði til Alþingis þótt hann sé ekki beint í baráttusæti. Gísli fékk sitt fjórða gula spjald á tímabilinu þegar Breiðablik laut í lægra haldi fyrir FH, 1-0, í 21. umferð Pepsi Max-deildarinnar á sunnudaginn. Hann verður því í banni gegn HK í lokaumferðinni á morgun. „Það er alltaf leiðinlegt þegar maður getur ekki tekið þátt. Það er erfiðara að horfa á heldur og manni líður alltaf betur inni á vellinum,“ sagði Gísli í samtali við Vísi. Eftir úrslit síðustu umferðar eru Blikar ekki lengur með örlögin í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í sínum höndum. Breiðablik er með 44 stig í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Víkings sem mætir Leikni á morgun. Blikar þurfa því á aðstoð Breiðhyltinga að halda. Gísli vonast til að Leiknismenn rétti Blikum hjálparhönd en segir að það stoði lítt að hugsa um hluti sem þeir stjórna ekki. „Við pælum ekki alltof mikið í þeim leik heldur aðallega að okkar leik. Það er það eina sem við getum stjórnað. Þetta fer bara eins og það fer. Það væri samt gaman ef Leiknismenn gætu strítt Víkingum aðeins,“ sagði Gísli. Auk þess að fá gult spjald gegn FH tognaði Gísli á ökkla í leiknum í Kaplakrika. Hann var tekinn af velli á 59. mínútu vegna meiðslanna. „Ég fann að ökklinn virkaði ekki en vildi ekki fara út af. En svo átti ég ekki möguleika því ökklinn var ónýtur. Og þá vissi ég að tímabilið var búið hjá mér.“ Gísli skoraði fimm mörk í tuttugu deildarleikjum í sumar.vísir/Hulda Margrét Auk þess að spila fótbolta er Gísli á lista Sjálfsstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar á morgun. „Það er gaman að prófa eitthvað nýtt og taka þátt í einhverju nýju,“ sagði Gísli sem er í 12. sæti á listanum í Kraganum. Þingsæti er því ansi fjarlægur möguleiki. En Gísli vonast eftir að morgundagurinn verði góður. „Það væri ekkert leiðinlegur dagur ef ég yrði Íslandsmeistari og kæmist inn á þing,“ sagði Gísli hlæjandi að lokum. Stöð 2 Sport verður með veglega dagskrá á morgun. Upphitun Pepsi Max stúkunnar hefst klukkan 13:00 og hægt verður að fylgjast með öllum leikjunum samtímis í þættinum. Þá verða allir leikirnir í lokaumferðinni sýndir beint og klukkan 20:00 er svo komið að uppgjörsþætti. Nánari upplýsingar um dagskrá morgundagsins má sjá með því að smella hér. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Pepsi Max-deild karla Breiðablik Alþingiskosningar 2021 Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Ólafur frá næstu vikurnar Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjá meira
Gísli fékk sitt fjórða gula spjald á tímabilinu þegar Breiðablik laut í lægra haldi fyrir FH, 1-0, í 21. umferð Pepsi Max-deildarinnar á sunnudaginn. Hann verður því í banni gegn HK í lokaumferðinni á morgun. „Það er alltaf leiðinlegt þegar maður getur ekki tekið þátt. Það er erfiðara að horfa á heldur og manni líður alltaf betur inni á vellinum,“ sagði Gísli í samtali við Vísi. Eftir úrslit síðustu umferðar eru Blikar ekki lengur með örlögin í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í sínum höndum. Breiðablik er með 44 stig í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Víkings sem mætir Leikni á morgun. Blikar þurfa því á aðstoð Breiðhyltinga að halda. Gísli vonast til að Leiknismenn rétti Blikum hjálparhönd en segir að það stoði lítt að hugsa um hluti sem þeir stjórna ekki. „Við pælum ekki alltof mikið í þeim leik heldur aðallega að okkar leik. Það er það eina sem við getum stjórnað. Þetta fer bara eins og það fer. Það væri samt gaman ef Leiknismenn gætu strítt Víkingum aðeins,“ sagði Gísli. Auk þess að fá gult spjald gegn FH tognaði Gísli á ökkla í leiknum í Kaplakrika. Hann var tekinn af velli á 59. mínútu vegna meiðslanna. „Ég fann að ökklinn virkaði ekki en vildi ekki fara út af. En svo átti ég ekki möguleika því ökklinn var ónýtur. Og þá vissi ég að tímabilið var búið hjá mér.“ Gísli skoraði fimm mörk í tuttugu deildarleikjum í sumar.vísir/Hulda Margrét Auk þess að spila fótbolta er Gísli á lista Sjálfsstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar á morgun. „Það er gaman að prófa eitthvað nýtt og taka þátt í einhverju nýju,“ sagði Gísli sem er í 12. sæti á listanum í Kraganum. Þingsæti er því ansi fjarlægur möguleiki. En Gísli vonast eftir að morgundagurinn verði góður. „Það væri ekkert leiðinlegur dagur ef ég yrði Íslandsmeistari og kæmist inn á þing,“ sagði Gísli hlæjandi að lokum. Stöð 2 Sport verður með veglega dagskrá á morgun. Upphitun Pepsi Max stúkunnar hefst klukkan 13:00 og hægt verður að fylgjast með öllum leikjunum samtímis í þættinum. Þá verða allir leikirnir í lokaumferðinni sýndir beint og klukkan 20:00 er svo komið að uppgjörsþætti. Nánari upplýsingar um dagskrá morgundagsins má sjá með því að smella hér. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Alþingiskosningar 2021 Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Ólafur frá næstu vikurnar Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjá meira