Yfir 105 þúsund fullbólusettir

Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll.
Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

105.590 einstaklingar hafa verið fullbólusettir hérlendis og bólusetning er hafin hjá 92.565 manns til viðbótar.

Þetta kemur fram á Covid.is.

Samtals hafa 287.635 skammtar af bóluefni verið gefnir.

Í gær var 12.421 skammtur af bóluefni Pfizer gefinn, 604 skammtar af AstraZeneca og 78 af Janssen. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka