Innlent

„Fulltrúar erlendu stórfyrirtækjanna tókust bara á loft“

Snorri Másson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á Bessastöðum. Hann hefur verið í Bandaríkjunum ásamt íslenskri sendinefnd á fundum við erlend stórfyrirtæki um íslenskuvæðingu snjalltækjanna.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á Bessastöðum. Hann hefur verið í Bandaríkjunum ásamt íslenskri sendinefnd á fundum við erlend stórfyrirtæki um íslenskuvæðingu snjalltækjanna. Vísir/egill

Forseti Íslands segir lífsreynslu útaf fyrir sig að hafa fundað með Apple, Microsoft og Amazon vestanhafs síðustu daga. Helstu sérfræðingar Íslendinga í máltækni eru hluti af sendinefnd, sem á að sannfæra stórfyrirtækin um að bjóða upp á samskipti við símana - á íslensku.

Forseti Íslands er staddur á hótelherbergi í Boston á austurströnd Bandaríkjanna, á milli funda við öflugustu tæknifyrirtæki heims. Á síðustu örfáu dögum hefur þetta verið ekki minna en Apple, Microsoft og Amazon. Fundarefnið: Íslensk máltækni.

„Hæ Embla. Hver er forseti Íslands?“ spyr Guðni. „Forseti Íslands er Guðni Th. Jóhannesson,“ svarar tækið. 

Guðni: „Sérðu, við getum þetta alveg. Þetta er enn þá á frumstigi, eða ekki langt á veg komið, en þetta verður framtíðin hvort sem okkur líkar betur eða verr.“

Meginmálið er að við getum talað íslensku við tækin. Á Íslandi er töluverð þekking til á þessu sviði, en hana þarf að sníða inn í kerfi tæknifyrirtækjanna, sem hanna síðan búnaðinn. Í þessu skyni var haldið til fundar við þessi fyrirtæki ásamt helstu sérfræðingum Íslendinga á þessu sviði.

„Hinir erlendu fulltrúar þessara stórfyrirtækja tókust bara á loft þegar þeir heyrðu hvað við höfðum fram að færa í þessum efnum. Ég er mjög bjartsýnn. Ég er mjög bjartsýnn á framtíð íslenskrar tungu,“ segir Guðni.

„Það sem skiptir máli er að sérfræðingarnir tali saman, að við náum tengslum við þessi fyrirtæki og að þau sjái sér hag í að vinna með okkur og það er afrakstur þessarar ferðar leyfi ég mér að segja,“ bætir forsetinn við.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×