Lýsa eftir dularfullum bíl á ferð morguninn sem Anne-Elisabeth hvarf Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. október 2020 17:02 Anne-Elisabeth Hagen hvarf sporlaust 31. október 2018. Lögregla birti í dag myndir úr eftirlitsmyndavélum (t.h.) sem talið er að sýni bíl ekið eftir göngustíg morguninn sem Anne-Elisabeth hvarf. Samsett
Lögregla í Noregi lýsir nú eftir dularfullum bíl sem ekið var eftir göngustíg í grennd við heimili Anne-Elisabeth Hagen og eiginmanns hennar stuttu áður en hún hvarf. Norskir fjölmiðlar hafa fjallað um mál Anne-Elisabeth í dag. Fram kemur í umfjöllun miðlanna NRK og VG að lögregla hafi lengi vitað af bílnum þó að fyrst hafi verið lýst eftir honum með myndum og myndböndum í dag. Nær ekkert er vitað um hann: lögregla er engu nær um tegund hans, ökumanninn eða mögulega farþega þrátt fyrir að nær tvö ár séu frá því að Anne-Elisabeth hvarf. „Þetta er áhugaverður bíll og við viljum ná tali af þeim sem ók hann, farþegum eða vitnum sem hafa séð til hans,“ segir Agnes Beate Hemiø yfirlögregluþjónn í samtali við VG í dag. Á ferð á mikilvægu augnabliki Bíllinn hefur einkum vakið áhuga lögreglu vegna þess að honum var ekið í grennd við heimili Hagen-hjónanna að Sloraveien í Lørenskog fyrir klukkan níu að morgni 31. október 2018. Síðast er vitað af Anne-Elisabeth á lífi klukkan 9:14 þann sama morgun. Eftirlitsmyndavélar sýna hreyfingu á göngustíg fyrir neðan húsið að morgni 31. október 2018. Myndirnar eru þó í afar lélegum gæðum, sem einmitt er ástæðan fyrir því að þær hafa ekki verið birtar fyrr en nú, og erfitt að greina hvað þær sýna. Rétt fyrir klukkan átta umræddan morgun sést þó rautt ljós á stígnum. Hvítt ljós, sem lögregla telur af bifreið, sést svo á hreyfingu á stígnum nokkrum sekúndum síðar og aftur í nokkrar sekúndur um klukkutíma síðar. Lögregla telur tímasetninguna hafa mikla þýðingu fyrir rannsóknina, þar sem Anne-Elisabeth er talin hafa verið myrt skömmu eftir klukkan 9:14. Myndband af hinum meintu bílljósum sem lögregla birti í dag má nálgast í frétt NRK. Rannsókn lögreglu á máli Anne-Elisabeth er ein sú umfangsmesta og dýrasta í norskri sögu. Lögregla hefur nú kortlagt 122 staði í tengslum við rannsóknina, bæði í Noregi og öðrum löndum. Þá lýsti lögregla eftir manni í sumar sem náðist á upptöku eftirlitsmyndavéla á göngu í grennd við húsið að Sloraveien daginn sem Anne-Elisabeth hvarf. Lögregla hefur reynt hvað hún getur til að finna manninn en hefur ekki haft erindi sem erfiði. Hemiø yfirlögregluþjónn segir í samtali við VG að það sé grunsamlegt að maðurinn hafi ekki gefið sig fram. Enn er gengið út frá því að Anne-Elisabeth hafi verið myrt á heimili sínu að Sloraveien að morgni 31. október 2018. Lögregla telur að eiginmaður hennar, Tom Hagen, hafi átt aðild að andláti hennar. Hann var handtekinn í lok apríl vegna gruns um slíka aðild en sleppt lausum í maí. Hann neitar því að hafa átt nokkurn hlut að máli. Rannsókn málsins er enn í forgangi hjá lögreglu, að sögn Hemiø. Markmiðið sé að finna Anne-Elisabeth og morðingja hennar. „Það er hægt að leysa þetta mál,“ segir Hemiø í samtali við VG í dag.
Anne-Elisabeth Hagen Noregur Tengdar fréttir Ættingi Tom Hagen ákærður fyrir afskipti af framburði vitnis Lögreglan í Lørenskog hefur grun um að ættingi norska auðkýfingsins Tom Hagen hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð eins vitnis í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen. 3. október 2020 21:59 Lögregla sneri aftur að heimili Hagen-hjónanna Lögregla í Noregi hélt áfram rannsókn á heimili hjónanna Tom og Anne-Elisabeth Hagen í Lørenskog í morgun. 3. september 2020 16:56 Á hreyfingu í 51 mínútu og fjögur ósvöruð símtöl Farsími Anne-Elisabeth Hagen mældist á hreyfingu í 51 mínútu eftir að hún sleit símtali við son sinn að morgni 31. október 2018. 2. júlí 2020 23:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Ættingi Tom Hagen ákærður fyrir afskipti af framburði vitnis Lögreglan í Lørenskog hefur grun um að ættingi norska auðkýfingsins Tom Hagen hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð eins vitnis í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen. 3. október 2020 21:59
Lögregla sneri aftur að heimili Hagen-hjónanna Lögregla í Noregi hélt áfram rannsókn á heimili hjónanna Tom og Anne-Elisabeth Hagen í Lørenskog í morgun. 3. september 2020 16:56
Á hreyfingu í 51 mínútu og fjögur ósvöruð símtöl Farsími Anne-Elisabeth Hagen mældist á hreyfingu í 51 mínútu eftir að hún sleit símtali við son sinn að morgni 31. október 2018. 2. júlí 2020 23:30