Reykvíkingar skipta Lviv inn fyrir Moskvu Jakob Bjarnar skrifar 24. maí 2023 16:27 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er nú staddur í Úkraínu en þar ritaði hann undir sérstakt systraborgasamkomulag við Lviv ásamt Andriy Sadovyy borgarstjóra þar. vísir/arnar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur er nú staddur í Úkraínu en hann og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lvív undirrituðu samkomulag um samvinnu borganna að viðstöddu fjölmenni í Ráðhúsinu í Lviv á þriðjudaginn síðastliðinn.
Á sama tíma var undirritað rammasamkomulag milli heilbrigðistæknifyrirtækisins Össurar og endurhæfingasjúkrahússins Unbroken sem rekið er af Lviv borg. Systraborgasamkomulag undirritað Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem vitnað er til orða Dags um nýtt systraborgarsamkomulag sem hann undirritaði fyrir hönd Reykjavíkurborgar í Lvív í Úkraínu í vikunni. „„Við vonumst til að auka samstarf borganna á næstu árum og áratugum. Innrás Rússa og yfirstandandi stríð yfirskyggir þó vitanlega allt í Úkraínu um þessar mundir. Því skipti mig mestu máli að koma á tengingu milli Lviv og stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Það var meginmarkmiðið með þessari ferð,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um nýtt systraborgasamkomulag sem hann undirritaði fyrir hönd Reykjavíkurborgar í Lvív í Úkraínu í gær. Í tilkynningunni segir jafnframt að þetta systraborgarsamkomulag hafi verið í undirbúningi um nokkurt skeið en í september 2022 samþykkti borgarstjórn einróma að slíta vinaborgarsamkomulagi við Moskvu. Til stendur að efla vinsamleg samskipti til frambúðar og hvetja til gagnkvæmrar samvinnu á þeim sviðum sem skipta máli fyrir borgara Lviv og Reykjavíkur. „Tekið verður sérstaklega tillit til mikilvægra gilda eins og lýðræðis, frelsis, réttarríkis og mannréttinda og samvinna efld á mismunandi sviðum þjóðlífs.“ Unbroken komið á koppinn Sadovyy sagði við þetta tækifæri af heimsókn sinni til Reykjavíkur árið 2019 þegar hann fundaði með Degi fyrst en þeir hafa átt í reglulegum samskiptum síðan þá. Á fundi þeirra Vilníus fyrr á þessu ári sagði Sadovyy frá risavöxnu verkefni Lviv að byggja upp sjúkrahús og alhliða þjónustu fyrir fólk sem missir útlimi og verður fyrir alvarlegum áföllum vegna stríðsins í landinu. Þetta verkefni kallast „Unbroken“. Dagur B. Eggertsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir með Andriy Sadovyy í sprengjubyrgi í Ráðhúsi Lviv.reykjavíkurborg Einnig var undirritað rammasamkomulag við endurhæfingamiðstöðina Unbroken við heilbrigðistæknifyrirtækið Össur við þetta tækifæri. Um 20 þúsund Úkraínubúar hafa misst útlimi í stríðinu og mörg þeirra eru börn. Öll þurfa mikla þjónustu sérfræðinga næstu ár og áratugi. Í tilkynningunni segir að borgaryfirvöld, með aðstoð alþjóðlegra stofnana, fyrirtækja og einstaklinga, hafa unnið grettistak í að byggja upp endurhæfingasjúkrahúsið Unbroken sem er það stærsta sinnar tegundar í Úkraínu. Borgarstjóri, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar og Sveinn Sölvason forstjóri Össurar heimsóttu Unbroken, kynntu sér starfsemina og ræddu við sjúklinga.
Reykjavík Úkraína Utanríkismál Sveitarstjórnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Sjá meira