Ný hjúkrunarrými hvergi að finna í fjármálaáætlun

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Árni Sæberg

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­kona og formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ir að fjár­fram­lag til áætlaðrar opn­un­ar nýrra hjúkr­un­ar­rýma sé hvergi að finna í fjár­mála­áætl­un. Seg­ir hún einnig að þörf sé á auk­inni áherslu á heimaþjón­ustu við aldraða til þess að minnka álag í heil­brigðis­kerf­inu.

Kristrún flutti fram­söguræðu í umræðu á Alþingi um hjúkr­un­ar­rými og heima­hjúkr­un. Sagði hún að áætlan­ir stjórn­valda gerðu ráð fyr­ir upp­bygg­ingu 394 hjúkr­un­ar­rýma á næstu fimm árum, en þrátt fyr­ir það mætti bú­ast við því að það myndi vanta um 200 hjúkr­un­ar­rými,ef litið væri til lýðfræðilegr­ar þró­un­ar næstu ára.

Þar að auki seg­ir hún að kostnaður­inn fyr­ir þess­um nýju rým­um, sem er um 6,8 millj­arðar króna, finn­ist ekki í fjár­mála­áætl­un stjórn­valda.

„Sam­kvæmt svari heil­brigðisráðherra hæst­virts er rekstr­ar­kostaður 394 nýrra rýma 6,8 millj­arðar króna á ári. Í fjár­mála­áætl­un til 2028 virðist ekki vera gert ráð fyr­ir rekstr­ar­kostnaði þess­ara nýju rýma. Hvergi gat ég fundið 6,8 millj­arða í viðbót. Hvernig stend­ur á þessu?“ spurði Kristrún

Framkævmdir standa yfir á nýjum landpítala.
Fram­kævmd­ir standa yfir á nýj­um landpítala. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Auk­in áhersla á aldraða minnki álag á hjúkr­un­ar­rým­um

Kristrún seg­ir að sam­kvæmt heil­brigðisráðherra kosti lega á sjúkra­húsi hátt í 70 millj­ón­ir króna á ári fyr­ir ein­stak­ling. Þá sé kostnaður á hjúkr­un­ar­rými 17 millj­ón­ir króna fyr­ir hvern ein­stak­ling, en aðeins 3 millj­ón­ir fyr­ir heimaþjón­ustu. Seg­ir hún að með aukn­ingu á heima­hjúkr­un væri hægt að fækka í fjölda þeirra eldri borg­ar­ar sem þurfa inn­lögn á hjúkr­un­ar­rými.

„Rann­sókn­ir sýna að stærst­ur hluti kostnaðar við heil­brigðisþjón­ustu er við þau 10-15% eldra fólks sem veik­ust eru á hverj­um tíma,“ sagði Kristrún. „Þetta er viðkvæm­asti hóp­ur­inn sem þarf að setja í for­gang. Bæði til að koma veg fyr­ir van­líðan og heilsu­bresti fyr­ir viðkom­andi ein­stak­linga en líka til að tryggja óþarfa kostnað í heil­brigðis­kerf­inu.“

Því sagði Kristrún að það veki furðu að fjár­magn til upp­bygg­ing­ar heima­hjúkr­un­ar hafi staðið óhreyft und­an­far­in 14 ár sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, „þrátt fyr­ir öldrun þjóðar og að þessi liður ætti að vera grunnstoð í umönn­un eldra fólks og draga úr þörf­um á hjúkr­un­ar­rým­um“.

„Hvers vegna hef­ur fjár­magnið sem ekki hef­ur leitað út vegna upp­bygg­ing­ar rýma ekki verið fund­inn far­veg­ur í heima­hjúkr­un? Hvernig stend­ur á því að ekki er gert ráð fyr­ir aukn­ingu til heima­hjúkr­un­ar, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar?“ spurði hún að lok­um, auk þess sem hún varpaði fram spurn­ingu um hver staðan væri á vinnu við opn­un hjúkr­un­ar­rýma fyr­ir þá sem glíma við fíkni­vanda eða fjölþætt­an vanda, „sem ráðherra boðaði opnað yrði árið 2021“.

Margt sem hef­ur taf­ist

Will­um Þór Þórs­son heil­brigðisráðherra steig næst­ur upp í pontu. Þakkaði hann Kristrúnu fyr­ir að koma inn á þetta mál „á þess­um breiða grunni og í fjöl­mjörg­um áhersl­um“. Þá sagðist hann vona að þingmaður fyr­ir­gæfi hon­um það að geta ekki farið yfir það allt sam­an á stutta ræðutím­an­um.

„Þetta kall­ar á fjöl­mörg úrræði og [verk­efnið] Gott að eld­ast fær raun­verula þetta vægi í stjórn­arsátt­mála því rík­is­stjórn horf­ir svo á málið. Þetta kall­ar á aukna heima­hjúkr­un, aukna end­ur­hæf­ingu, [og] aukna dagþjálf­un,“ seg­ir Will­um en Gott að eld­ast er ný aðgerðarátæl­un við þjón­ustu eldra fólks.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti Gott að eldast fyrr á …
Will­um Þór Þórs­son heil­brigðisráðherra kynnti Gott að eld­ast fyrr á ár­inu. mbl.is/​Arnþór

Kveðst hann sam­mála Kristrúnu um að það sé dýr­ara að gera ekk­ert vegna hækk­andi lífs­ald­urs held­ur en að vinna með fólki og styðja við það heima.

Þá seg­ir Will­um að stjórn­völd hafi þegar aug­lýst eft­ir hús­næði „sem hef­ur skilað tveim­ur spenn­andi verk­efn­um sem geta skilað þess­um 200 rým­um, sem við get­um horft fram á á næstu fimm árum, eins og hátt­virt­ur þingmaður dreg­ur fram, ef við ger­um ekki neitt og leggj­um ekki aukna áherslu á end­ur­hæf­ingu, sem við höf­um verið að gera.“

Nefn­ir Will­um einnig að mikl­ar taf­ir hafi því miður orðið á mörg­um fram­kvæmd­um. Nefn­ir hann þar á meðal hjúkr­un­ar­heim­ilið við Mosa­veg í Reykja­vík. „Við erum eig­in­lega á núllpunkti í því verk­efni.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert