„Hann er að setja alla í sínu nærumhverfi í stórhættu“ Snorri Másson skrifar 20. október 2021 20:31 Bílstjóri hjá Strætó bs. keyrir ekki á meðan mál hans er til athugunar. Hann liggur undir ámæli fyrir að hafa birt af sér myndband í símanum undir stýri. TikTok Strætóbílstjóri sem tók upp myndband fyrir samfélagsmiðla undir stýri fær ekki að aka á meðan unnið er úr máli hans innan Strætó bs. Fordæmi eru fyrir því að bílstjórar séu áminntir eða reknir fyrir annað eins.
Myndbandið birti bílstjórinn á samfélagsmiðlinum TikTok og eftir að fólk hóf að ræða það á samfélagsmiðlum, barst Strætó bs. fjöldi ábendinga um málið. Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó bs. segir að málið sé komið í formlegan farveg. „Við horfum á þetta sem algert dómgreindarleysi. Hann er þarna að setja alla í sínu nærumhverfi í stórhættu, því það er stórhættulegt auðvitað að vera í símanum á meðan þú ert að keyra. Það er alveg skýrt hérna í reglunum, þú átt ekki að vera í símanum á meðan þú ert að keyra, sérstaklega á svona stóru og þungu ökutæki,“ segir Guðmundur. Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi segir að það hafi verið erfitt að horfa á myndband af strætóbílstjóra í símanum undir stýri.Stöð 2/Egill Máli bílstjórans hefur þegar verið vísað til deildarstjóra innan Strætó og er nú að sögn Guðmundar komið í réttan farveg innanhúss. Hann segir að bílstjórinn fái ekki að aka á meðan farið er yfir málið með honum. Hvernig má sjá fyrir sér framtíð bílstjóra sem gerir svona? „Það er allur gangur á því. Það fer eftir sögu bílstjórans líka. Ég get ekki farið út í það í fjölmiðlum hvað verður gert hér en fólk hefur verið áminnt og fólk hefur jafnvel verið rekið úr starfi fyrir að vera í símanum. Þannig að við leyfum þessu bara að fara rétta leið,“ segir Guðmundur. Myndbandið gæti einnig orðið að lögreglumáli, enda liggur fjörutíu þúsund króna sekt við að nota fjarskiptabúnað undir stýri. Sú sekt var snarhækkuð fyrir um tveimur árum enda útbreitt vandamál að síminn trufli ökumenn við akstur. Breytt 22.10: Upphaflega sagði í fréttinni að bílstjórinn fengi að aka þrátt fyrir myndbirtinguna en rétt er að hann ekur ekki fyrr en skoðun á máli hans er lokið.
Strætó Umferðaröryggi Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Tvöfalt fleiri sektaðir fyrir að nota símann undir stýri Lögreglan fær í auknu mæli ábendingar um ölvunarakstur eða varhugavert aksturslag sem síðan reynist, við frekari athugun, vera símanotkun undir stýri. 25. júlí 2019 20:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Tvöfalt fleiri sektaðir fyrir að nota símann undir stýri Lögreglan fær í auknu mæli ábendingar um ölvunarakstur eða varhugavert aksturslag sem síðan reynist, við frekari athugun, vera símanotkun undir stýri. 25. júlí 2019 20:30