Lögreglumaður fær ekkert eftir að staða hans var auglýst vegna ítrekaðra kvartana Atli Ísleifsson skrifar 24. janúar 2022 13:22 Allir samstarfsmenn lögreglumannsins kvörtuðu til fagráðs lögreglu í byrjun júní 2019, vegna framkomu mannsins í þeirra garð. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af rúmlega 140 milljóna króna kröfu lögreglumanns eftir að skipun hans var ekki framlengd og staða hans auglýst laus til umsóknar.
Í dómnum segir að maðurinn hafi starfað sem lögreglumaður í um 35 ár, síðast hjá embætti lögreglustjórans á Vesturlandi. Skipunartími hans hafði verið framlengdur um fimm ár árið 2015, en árið 2019 var honum tilkynnt að skipun hans yrði ekki framlengd á nýjan leik. Samstarfsfólk hans hafði þá ítrekað kvartað yfir framkomu hans og vegna samstarfsörðugleika hafi verið ákveðið að auglýsa stöðu hans lausa til umsóknar. Vildi lögreglumaðurinn meina að sú ákvörðun hafi verið ólögleg. Auk þess fór hann fram á greiðslu fjögurra milljóna króna í miskabætur. Langur aðdragandi Í dómnum segir að ákvörðun lögreglustjóra hafi átt sér langan aðdraganda og byggði á samskiptaörðugleikum mannsins og annarra starfsmanna embættisins. Höfðu yfirmenn embættisins átt ítrekuð samtöl við manninn vegna þessa. Þannig höfðu til dæmis tvær lögreglukonur kvartað yfir framkomu mannsins og sagt hann gera lítið úr þeim og talað niður til þeirra. Þá kvörtuðu allir samstarfsmenn lögreglumannsins við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi til fagráðs lögreglu í byrjun júní 2019, vegna framkomu mannsins í þeirra garð. Málefnaleg sjónarmið „Í ljósi þess sem að framan er rakið verður ekki annað séð en að málefnaleg sjónarmið hafi legið að baki þeirri ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að auglýsa umrætt embætti lögreglumanns laust til umsóknar. Lá að baki henni löng saga samstarfsörðugleika stefnanda við samstarfsmenn sína sem yfirmenn embættisins höfðu rætt ítrekað við stefnanda yfir langt tímabil og gert honum grein fyrir. Ekkert liggur fyrir um að lögreglustjórinn hafi reynt að koma sér hjá því að fylgja lögboðinni málsmeðferð við meðferð málsins eða að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst er ákvörðun var tekin. Er það niðurstaða dómsins að sú ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að auglýsa það embætti sem stefnandi hafði gegnt laust til umsóknar hafi verið tekin á grundvelli skýrrar lagaheimildar og ekki liggi annað fyrir um það í málinu en að hún hafi verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum,“ segir í dómnum. Dómari í málinu þótti rétt að málskostnaður myndi falla niður.
Lögreglan Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent