Talsmaður Pútíns segir átök í Belgorod mikið áhyggjuefni Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2023 11:31 Úkraínskur hermaður nærri Bakhmut í austurhluta landins. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. AP/Libkos Bardagar eru enn sagðir eiga sér stað í Belgorod héraði í Rússlandi, þar sem rússneskir meðlimir tveggja vopnahópa eru sagðir hafa lagt undir sig minnst eitt þorp í Rússlandi. Rússar segja mennina sem gerðu árásina vera úkraínska skæruliða en Úkraínumenn segja þá Rússa sem berjist gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands.
Annar hópurinn kallast á ensku „Freedom of Russia Legion“ og hinn kallast „Russian Volunteer Corps“. Í yfirlýsingu er árásirnar hófust sögðust hóparnir vilja binda enda á einræði í Rússlandi. Ekki liggur fyrir hve margir menn eru í hópunum, sem eru lítt þekktir, en þeir eru búnir bæði bryn- og skriðdrekum. Eins og bent er á í frétt AP fréttaveitunnar er þetta ekki í fyrsta sinn sem meðlimir þessara vopnahópa gera árásir í Rússlandi. Þetta er þó fyrsta sinn sem slík árás stendur yfir í meira en sólarhring. Varnarmálaráðuneyti Rússlands hélt því fram á tólfta tímanum í dag að allir óvinir hafi verið reknir frá Belgorod og að um sjötíu óvinir hafi verið felldir. Ráðuneytið birti myndefni sem á að sýna frá átökum milli rússneska hersins og umræddra hópa en þetta var fyrsta yfirlýsing ráðuneytins um ástandið í héraðinu. Russian MOD now says it has liquidated the invaders of Belgorod, killing more than 70 fighters and using artillery and aviation to do it. It said they were pushed back into Ukrainian territory and finished off there. pic.twitter.com/nYsnDG9swo— Matthew Luxmoore (@mjluxmoore) May 23, 2023 Ekkert hefur þó verið staðfest enn, en fregnir hafa einnig borist af því að hóparnir hafi tekið fleiri þorp í Belgorod. Sjá einnig: Segjast hafa tekið rússneskan bæ undir sína stjórn Vyacheslav Gladkov, ríkisstjóri Belgorod, sagði í morgun að tólf borgarar hefðu særst í átökunum og ein eldri kona hefði látist þegar verið var að flytja hana á brot. Gladkov sagði íbúum sem hafa flúið að snúa ekki aftur strax. Þau yrðu látin vita þegar það yrði öruggt og talaði hann um það þegar „and-hryðjuverkaaðgerðum“ lýkur. Gladkov sagði einnig í morgun að drónaárásir hefðu verið gerðar í héraðinu og að fólk hefði farist í þeim. Eitt mögulegt skotmark þessara árása var bygging FSB, Leyniþjónustu Rússlands, í Belgorod. Ekki fundur hjá þjóðaröryggisráðinu RIA fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hafði eftir Dmitrí Peskóv, talsmanni Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, í morgun að verið væri að vinna í því að finna hverjir mennirnir væru og hve margir þeir væru. Þá hefur TASS eftir honum að ekki standi til að boða til fundar hjá þjóðaröryggisráði Rússlands vegna átakanna, til viðbótar við þann sem skipulagður er í lok vikunnar. Samkvæmt BBC í Rússlandi sagði Peskóv að átökin væru mikið áhyggjuefni. Talsmaðurinn sagði einnig að þetta staðfesti enn og aftur að „úkraínskir vígamenn“ héldu árásum þeirra á Rússland áfram og unnið yrði að því að koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig. Úkraínumenn segja að þetta séu rússneskir ríkisborgara að berjast í Belgorod og það komi Úkraínu ekki við. Ráðgjafi varnarmálaráðherra Úkraínu vildi ekki svara spurningum BBC í gær um það hver hefði útvegað vopnahópunum vopn og hergögn. Steve Rosenberg, fréttamaður BBC í Moskvu, fór í morgun yfir það hvað rússnesk dagblöð hafa skrifað um átökin í Belgorod. What are this morning s Russian newspapers saying about the attack on Belgorod region? #ReadingRussia #Belgorod @BBCNews pic.twitter.com/NmIWMwNU4L— Steve Rosenberg (@BBCSteveR) May 23, 2023
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Segir ekkert eftir í Bakhmut nema fallna Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Bakhmut ekki í höndum Rússa. Hann segir bæinn vera dauðan og að þar væru margir fallnir. Þetta sagði Selenskí er hann var spurður út í yfirlýsingar Rússa um að Bakhmut væri í þeirra höndum eftir margra mánaða átök. 21. maí 2023 08:49 Rússar vara við „gríðarlegri áhættu“ vegna þotnanna Rússar vara Vesturlönd við því að senda Úkraínumönnum bandarískar F-16 orrustuþotur og segja Vesturlönd halda áfram stigmögnun stríðsins. Selenskí segir tíðindin söguleg. 20. maí 2023 20:24 Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli. 20. maí 2023 13:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Sjá meira
Segir ekkert eftir í Bakhmut nema fallna Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Bakhmut ekki í höndum Rússa. Hann segir bæinn vera dauðan og að þar væru margir fallnir. Þetta sagði Selenskí er hann var spurður út í yfirlýsingar Rússa um að Bakhmut væri í þeirra höndum eftir margra mánaða átök. 21. maí 2023 08:49
Rússar vara við „gríðarlegri áhættu“ vegna þotnanna Rússar vara Vesturlönd við því að senda Úkraínumönnum bandarískar F-16 orrustuþotur og segja Vesturlönd halda áfram stigmögnun stríðsins. Selenskí segir tíðindin söguleg. 20. maí 2023 20:24
Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli. 20. maí 2023 13:49