Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Toppliðið vill komast aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikir kvöldsins.
Leikir kvöldsins.

Sextánda umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hefst í kvöld með tveimur leikjum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Við hefjum leik klukkan 19:30 þegar topplið Atlantic Esports mætir Breiðablik. Atlantic tapaði gegn ríkjandi meisturum Dusty í seinustu umferð og liðið vill komast aftur á sigurbraut til að halda toppsætinu.

Þá mætast Viðstöðu og Ten5ion klukkan 20:30, en Viðstöðu er í harðri baráttu við fjögur önnur lið um miðja deild á meðan Ten5ion situr í næstneðsta sæti.

Fylgjast má með beinni útsendingu frá leikjum kvöldsins á Stöð 2 eSport, eða einfaldlega í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×