Viðskipti innlent

Hæsti­réttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum

Árni Sæberg skrifar
Hart er barist um pláss í þessum kæli.
Hart er barist um pláss í þessum kæli. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur fallist á beiðni áfengisinnflutningsfyrirtækisins Dista ehf. um áfrýjunarleyfi í máli þess á hendur ÁTVR. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að ÁTVR hafi mátt taka tvær tegundir af bjór úr hillum vegna dræmrar framlegðar af sölu þeirra.

Málið snýst um ákvörðun ÁTVR um að taka bjórtegundirnar Faxe Witbier og Faxe IPA úr sölu vegna þess að þeir næðu ekki inn á lista yfir þá fimmtíu bjóra í flokknum annar bjór sem hafa mesta framlegð.

Héraðsdómur Reykjavíkur taldi að ÁTVR hefði ekki verið heimilt að miða við framlegð við úthlutun á hilluplássi vegna skorts á lagaheimild til þess. Miða hefði átt við eftirspurn, líkt og segir í lögum. Landsréttur taldi aftur á móti að lögunum væri ætlað að hrófla við þeirri áralöngu tilhögun að miða árangursviðmið um vöruval við framlegð.

Í ákvörðun Hæstaréttar segir að Dista hafi byggt á því að á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi en í því reyni á inntak og umfang krafna um lagaáskilnað við takmörkun á atvinnufrelsi. Þá reyni á heimild stjórnvalda til að setja efnisreglu í reglugerð, sem ekki sé mælt fyrir um í lögum og byggja á henni við töku íþyngjandi ákvarðana. 

Dista vísi einnig til þess að í málinu reyni á margþætt álitaefni um lögskýringu og að dómurinn sé bersýnilega rangur í þessu tilliti. Dista bendi á að skoða verði forsögu ákvæðis laga um verslun með áfengi og tóbak með hliðsjón af niðurstöðu EFTA-dómstólsins í tilteknu máli, en ákvæðinu hafi verið breytt með breytingarlögum árið 2014 í kjölfar þess dóms. Þá þurfi einnig að líta til tiltekins ákvæðis EES samningsins við túlkun ákvæðisins. 

Að lokum bendi Dista á að staðhæft sé í dómi Landsréttar, án rökstuðnings, að viðmið um framlegð sé betur til þess fallið en viðmið um eftirspurn að ná ýmsum markmiðum stjórnvalda.

Að virtum gögnum málsins telji Hæstiréttur að málið geti haft fordæmisgildi, meðal annars um túlkun laga um verslun með áfengi og tóbak.


Tengdar fréttir

Mátti ekki taka bjór úr hillum

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt ákvörðun ÁTVR um að taka tvær tegundir bjórs, sem innflutningsfyrirtækið Dista flytur inn, úr hillum vínbúða úr gildi. Dómurinn taldi ÁTVR ekki hafa farið að lögum með því að taka mið af framlegð þegar ákveðið var hvaða bjórar fengu hillupláss.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×