Oddný og Viktor Stefán leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi var samþykkur á fundi kjördæmisráðs í kvöld. Oddný Harðardóttir leiðir listann áfram og Viktor Stefán Pálsson verður í öðru sæti listans.

Oddný Harðardóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi á ný.
Oddný Harðardóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi á ný.
Auglýsing

Oddný Harð­ar­dóttir þing­mað­ur, þing­flokks­for­maður og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra leiðir lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi til kosn­inga í haust. Í öðru sæti list­ans verður Viktor Stefán Páls­son, sviðs­stjóri hjá Mat­væla­stofnun og for­maður Ung­menna­fé­lags Sel­foss og þriðja sætið skipar Guðný Birna Guð­munds­dóttir hjúkr­un­ar­stjóri heima­hjúkr­unar hjá Reykja­vík­ur­borg og bæj­ar­full­trúi í Reykja­nes­bæ.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni, en sam­kvæmt henni var listi flokks­ins sam­þykktur með „yf­ir­gnæf­andi meiri­hluta“ á fundi kjör­dæm­is­ráðs í Suð­ur­kjör­dæmi í kvöld.

Efstu fimm frambjóðendur á lista flokksins.

Odd­vit­inn Odd­ný, sem er eini þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, seg­ist leiða list­ann með stolti inn í kosn­ingar hausts­ins. „Það eru fjöl­mörg tæki­færi framundan í upp­bygg­ingu eftir heims­far­aldur og sýn okkar er skýr í þeim efn­um. Rík­is­stjórnin og stjórn­ar­flokk­arnir hafa brugð­ist og ekki staðið með fólk­inu í kjör­dæm­inu sem bera þyngstu byrð­arnar í heims­far­aldr­in­um. Nú þurfum við allar hendur á dekk svo ný rík­is­stjórn eftir kosn­ingar verði leidd af jafn­að­ar­mönn­um,” er haft eftir henni í til­kynn­ingu flokks­ins.

Eins og Kjarn­inn fjall­aði um nýlega létu nokkrir, sem höfðu hug á að taka eitt af efstu sætu list­ans í Suð­ur­kjör­dæmi, óánægju sína í ljós þegar þeim var ekki boðið að setj­ast í umrædd sæti.

Páll Valur Björns­son fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og núver­andi vara­þing­maður Sam­fylk­ingar var einn þeirra „Það verður að segj­­ast eins og er að þessi aðferð Sam­­fylk­ing­­ar­innar við að raða upp á lista er eig­in­­lega alveg glötuð,“ skrif­aði Páll Valur á Face­­book.

Njörður Sig­­urðs­­son, sem skip­aði annað sæti á list­­anum 2017, fékk að eigin sögn boð um að vera í fjórða sæti á lista og hafn­aði því. Einnig lýsti Ást­þór Jón Ragn­heið­­ar­­son, sem sóst hafði eftir 2.-3. sæti á lista flokks­ins, yfir óánægju með að vera boðið sæti mun neðar á lista.

Sam­fylk­ingin fékk 9,6 pró­sent atkvæða í Suð­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og einn þing­mann kjör­inn, sem áður seg­ir.

Efstu sæti á lista Sam­fylk­ingar í Suð­ur­kjör­dæmi

  1. Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, Suð­ur­nesja­bær - Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, þing­flokks­for­mað­ur, kenn­ari, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garði og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra.
  2. Viktor Stefán Páls­son, Árborg - Sviðs­stjóri hjá Mat­væla­stofnun og for­maður Ung­menna­fé­lags Sel­foss
  3. Guðný Birna Guð­munds­dótt­ir, Reykja­nes­bær - Hjúkr­un­ar­stjóri heima­hjúkr­unar hjá Reykja­vík­ur­borg, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nes­bæ, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og MBA nemi
  4. Inger Erla Thom­sen, Gríms­nes - Stjórn­mála­fræði­nemi
  5. Frið­jón Ein­ars­son, Reykja­nes­bær - For­maður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar
  6. Anton Örn Egg­erts­son, Vest­manna­eyjar - Með­eig­andi í Pít­su­gerð­inni og yfir­kokkur hjá veit­inga­staðnum Gott
  7. Mar­grét Stur­laugs­dótt­ir, Reykja­nes­bær - Atvinnu­laus fyrr­ver­andi flug­freyja Icelandair
  8. Davíð Krist­jáns­son, Árborg - Vél­virki hjá Veitum

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent