Lögreglan í París beitti táragasi gegn mótmælendum sem berjast fyrir fjölmiðlafrelsi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. nóvember 2020 16:53 Þúsundir mótmælenda hafa komið saman í París og víðar um Frakkland í dag þar sem frumvarpinu er mótmælt. EPA/CHRISTOPHE PETIT TESSON Þónokkur mótmæli hafa brotist út í Frakklandi gegn frumvarpi sem kveður meðal annars á um að hvers kyns myndataka af lögreglu við skyldustörf verði gerð að saknæmu athæfi, sé myndatakan „í annarlegum tilgangi.“
Andstæðingar frumvarpsins segja það grafa undan frelsi fjölmiðla til að afla gagna og fjalla um lögregluofbeldi en stjórnvöld segja ætlunina með frumvarpinu vera að vernda starfsfólk lögreglunnar. Umrædd grein frumvarpsins sem varðar myndbirtingu af lögreglu við skyldustörf er liður í stærra og umfangsmeira frumvarpi nýrrar öryggislöggjafar. Lögreglan í París hefur beitt táragasi gegn mótmælendum sem köstuðu flugeldum í lögreglu. Fyrr í þessari viku kom myndefni upp á yfirborðið þar sem sjá má þrjá hvíta lögreglumenn beita ofbeldi og hörku gegn svörtum tónlistarframleiðanda. Umræddar myndir hafa valdið miklum titringi meðal frönsku þjóðarinnar en þær sína hvernig lögreglumennirnir sparka og kýla í manninn, Michel Zecler. Emmanuel Macron hefur fordæmt uppákomuna og segir ofbeldi lögreglumannanna vera „óásættanlegt og til skammar.“ Lögreglumennirnir hafa verið sendir í leyfi og er málið til rannsóknar. Þá hafa stjórnvöld einnig fyrirskipað lögreglunni að gefa ýtarlega skýrslu vegna máls sem upp kom í París í vikunni þegar lögreglumenn rifu með ofbeldisfullum hætti niður bráðabirgða-flóttamannabúðir og áttu í átökum við flóttafólk og aðgerðasinna. Mótmæli hafa brotist út víða um landið en þúsundir komu saman á lýðveldistorginu í París í dag. Myndum og myndböndum frá mótmælunum hefur verið deilt á samfélagsmiðlum. Stand with #France.The global security bill, which received a first-reading adoption by the National Assembly jeopardizes the freedom of the press & will introducte of a ubiquitous surveillance system. pic.twitter.com/Mvuuucx4Jt— Anna Paulina Luna (@realannapaulina) November 28, 2020 „Frumvarpið grefur undan fjölmiðlafrelsi, frelsinu til að upplýsa og að vera upplýstur og tjáningarfrelsinu,“ sagði skipuleggjandi mótmælanna í samtali við AFP fréttaveituna. Búist er við að fulltrúar verkalýðshreyfinga muni ganga til liðs við mótmælendur sem og fulltrúar úr hreyfingu gulu vestanna svokölluðu. Frumvarpið var samþykkt í neðri deild franska þingsins í síðustu viku og bíður nú samþykkis efri deildarinnar. Samkvæmt 24. grein frumvarpsins verður það gert að saknæmu athæfi að birta myndir af lögreglumönnum við skyldustörf, sé markmiðið með myndbirtingunni að valda þeim „líkamlegum eða andlegum skaða. Hin ýmsu samtök blaðamanna og samtök um fjölmiðlafrelsi hafa jafnframt mótmælt frumvarpinu harðlega. #France tramples on press freedom. We denounce the articles in total contradiction with international legal standards on freedom of expression. No compromise! @IFJGlobal @MediaFreedomEU @globalfreemedia @BalkansCaucasus #StopLoiSecuriteGlobale https://t.co/6mPLk3wCDj #mfrr— EFJ (@EFJEUROPE) November 27, 2020 #France We invite journalists and democracy activists to participate en masse in the "Marches of Liberties" organised tomorrow throughout France. Defense of #PressFreedom is a priority.https://t.co/HqMZaIQiuw— IFJ (@IFJGlobal) November 27, 2020
Fjölmiðlar Frakkland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent Fleiri fréttir „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Sjá meira