Juventus fjarlægist titilinn

Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Juventus gegn Roma fyrr …
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Juventus gegn Roma fyrr á árinu. Ljósmynd/Juventus

Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Juventus máttu sætta sig við tap, 2:1, fyrir Roma í uppgjöri tveggja efstu liða ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu kvenna í dag.

Enn eru sex umferðir eftir í efri hluta deildarinnar en Roma á deildarmeistaratitilinn vísan enda með 13 stiga forskot á Juventus eftir sigur dagsins.

Roma vann sinn fyrsta Ítalíumeistaratitil í kvennaflokki á síðasta tímabili og allt útlit fyrir að Rómverjar verji titilinn.

Sara Björk kom inn á sem varamaður í liði Juventus á 59. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert