Átta smit – þar af fjögur innanlands

Alls greindust fjórir með kórónuveiruna innanlands í gær. Þeir voru allir í sóttkví. Fjögur virk smit greindust á landamærunum, þrjú við fyrri skimun og eitt við seinni skimun. Einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar og því ekki víst að viðkomandi sé með gamalt smit.

Enginn er á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Nú eru 123 í ein­angr­un og í sótt­kví eru 139. Í skimun­ar­sótt­kví eru 802.

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 24 síðustu tvær vik­ur og 7,9 á landa­mær­un­um. Und­an­farna daga hef­ur hlut­fall nýrra smita hækkað jafnt og þétt inn­an­lands en lækkað við landa­mær­in. 

Alls voru 1.002 skimaðir innanlands í gær. Á landa­mær­un­um voru 432 ein­stak­ling­ar skimaðir.

Alls eru 38 börn með Covid á Íslandi í dag. Flest smit­in eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára eða 37. Þrjú smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 29 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og sex í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 17 smit. 21 smit er í ald­urs­hópn­um 40-49 ára. Átta smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, eitt meðal fólks á sjö­tugs­aldri og einn á átt­ræðis­aldri er með Covid-19. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert