27 íbúar greinst í hópsýkingu á Grund Eiður Þór Árnason skrifar 26. janúar 2022 10:05 Um er að ræða stærstu hópsýkingu sem komið hefur upp á hjúkrunarheimilinu frá því faraldurinn hófst. Vísir/Vilhelm 27 heimilismenn á hjúkrunarheimilinu Grund hafa greinst með Covid-19 síðustu daga. Fjórir starfsmenn hafa sömuleiðis greinst í tengslum við hópsýkinguna. Um er að ræða tæpan helming íbúa á 60 manna deild og heldur skimun áfram næstu daga.
Einn heimilismaður hefur verið lagður inn á Landspítalann vegna veikinda sinna. Þetta staðfestir Sigrún Faulk, hjúkrunarframkvæmdastjóri á Grund, en RÚV greindi fyrst frá hópsýkingunni. Þetta er sú umfangsmesta sem greinst hefur á Grund frá því faraldurinn hófst. Nær allir íbúar hafa verið þríbólusettir gegn Covid-19 og er lítið um alvarleg veikindi í hópnum. „Við erum mjög þakklát fyrir að þetta er bundið við eina deild og öll áherslan hjá okkur er á að það haldist þannig, að það verði ekki hópsmit á fleiri deildum. Fólk er ekki svo veikt og við bara tökum einn dag í einu hérna,“ segir Sigrún í samtali við Vísi. Íbúar almennt tekið þessu með ró Heimsóknatakmarkanir hafa verið í gildi á hjúkrunarheimilinu og er heimilismönnum á öðrum deildum einungis heimilt að fá til sín einn gest á dag. Eru þeir beðnir um að fara sérstaklega varlega og taka hraðpróf áður en mætt er á heimilið. Sigrún segir að nokkur fjöldi starfsmanna hafi lent í einangrun að undanförnu, líkt og á öðrum stórum vinnustöðum, og hjúkrunarheimilið því verið undirmannað. „En þetta einhvern veginn gengur með góðum vilja og samstöðu, skilningsríkum aðstandendum og æðrulausu heimilisfólki, það er kannski fyrst og fremst það að íbúarnir hérna eru alveg einstakir.“ Um sé að ræða æðrulausa kynslóð sem hafi upplifað ýmislegt á sinni ævi og láti ekki hvað sem er slá sig út af laginu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hjúkrunarheimili Eldri borgarar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira