Kennir faraldrinum um frekar en UEFA Sindri Sverrisson skrifar 30. nóvember 2020 15:31 Ef allt gengur að óskum gætu Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í landsliðinu fagnað EM-sæti einhvern tímann á morgun. vísir/vilhelm „Það yrði algjör draumastaða ef við gætum beðið hérna saman og fengið góðar fréttir. Við myndum fagna því almennilega,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir daginn fyrir leikinn sem gæti ráðið því hvort Ísland fer á EM í Englandi.
Eftir 3-1 sigurinn gegn Slóvakíu síðasta fimmtudag á Ísland góða möguleika á að komast beint á EM með því að vinna Ungverjaland í Búdapest á morgun. Ísland er öruggt um sæti í umspili en þrjár þjóðir með bestan árangur í 2. sæti, í undanriðlunum níu, komast beint á EM og þar stendur Ísland vel að vígi. Staðan mun skýrast eftir því sem líður á morgundaginn en Ungverjaland og Ísland mætast snemma, eða klukkan 14.30 að íslenskum tíma. Vinni Ísland á morgun munu Glódís og vinkonur hennar í landsliðinu því sjálfsagt bíða spenntar saman eftir úrslitum í öðrum riðlum, en þær halda svo heimleiðis á miðvikudag. „Þetta er svolítið flókin staða upp á það að gera að þótt við vinnum leikinn þá vitum við ekki hvort við erum komnar á EM eða ekki. Við þurfum kannski svolítið að treysta á aðra. En við förum bara í þennan leik með klárt markmið um að klára okkar og svo kemur bara í ljós hvað aðrir gera, og hvort við förum beint á EM eða ekki,“ segir Glódís við Vísi. Reynum að skora eins mörg og við getum en aðalmarkmiðið að vinna Ísland er til að mynda í baráttu við Austurríki sem er í 2. sæti G-riðils, með jafnmörg stig og Ísland og aðeins einu marki færra. Því gæti hvert mark gegn Ungverjalandi skipt sköpum: „Við þurfum bara að fara í leikinn til að vinna hann, fyrst og fremst, en við erum samt meðvitaðar um að markatala getur skipt máli. Ef við erum komnar í þannig stöðu þá reynum við náttúrulega að skora eins mikið og við getum og koma okkur í sem besta stöðu, en fyrst og fremst eru þrjú stig markmiðið.“ Staðan í tveimur riðlum sem skipta Ísland miklu máli verður ekki endanlega ljós fyrr en í febrúar. Lið þar gætu því farið í sína lokaleiki meðvituð um hvaða úrslit duga þeim til að komast á EM. Aðspurð hvort slík staða sé ekki óréttlát, og hvort hún telji að UEFA myndi leyfa þessu að gerast í undankeppni karla, svarar Glódís: Klippa: Glódís um leikjaniðurröðun UEFA „Þetta er náttúrulega búið að vera svolítið erfitt út af Covid og frestuðum leikjum. Og það getur verið að við vitum ekki einu sinni í lok dags hvort við komumst á EM því það eru leikir eftir í öðrum riðlum sem klárast ekki fyrr en í febrúar. Hvort að þetta myndi gerast hjá karlalandsliðinu veit ég ekki en ég ætla að kenna Covid um frekar.“ Ungverjar án Þýskalandsmeistara Svo virðist sem að Ungverjar verði án margra af sínum bestu leikmönnum, meðal annars vegna faraldursins. Sjö leikmenn sem byrjuðu í 4-1 tapinu gegn Íslandi fyrir rúmu ári síðan eru ekki í leikmannahópnum. Þar á meðal er Zsanett Jakabfi, markaskorari úr þýska meistaraliðinu Wolfsburg og fyrrverandi samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, en hún gaf ekki kost á sér. „Ég held að þetta verði hörkuleikur. Þær verða alltaf með fínt lið, burtséð frá því hvort það eru komnar einhverjar nýjar inn. Þær voru líka svolítið laskaðar þegar þær spiluðu við Svíþjóð en ég held að það séu fínustu leikmenn sem koma inn,“ segir Glódís, og bætir við: „Eins og við sáum í leiknum á móti Slóvakíu þá er það þannig að ef að við erum ekki með kveikt á okkur þá getum við lent í brasi á móti öllum. Það þýðir ekkert að fara í þennan leik með lélegt hugarfar. Við þurfum að fara í þennan leik með það í huga að þetta sé hörkuleikur, og þær munu gera allt til að koma í veg fyrir að við vinnum.“ Klippa: Glódís Perla um leikinn við Ungverja
EM 2021 í Englandi Mest lesið Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila Enski boltinn Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Enski boltinn „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Körfubolti Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Íslenski boltinn „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ Körfubolti Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Enski boltinn Sungu nafn Arnórs hástöfum Fótbolti Atlanta Hawks fá fyrsta valrétt í nýliðavalinu Körfubolti „Allt þetta umtal um hvernig hann hagar sér er orðið þreytt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og fleira Sport Fleiri fréttir Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sveindís Jane á skotskónum í sigurleik Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Jafntefli eftir óvænt brotthvarf Óskars Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Hlín allt í öllu í sigri Kristianstad Sonur Kristbjargar fagnaði góðum sigri Langþráð endurkoma Valgeirs Ótrúlegur árangur Glódísar og Bayern en Selma fallin Þórir hélt Braunschweig uppi og gerði Sveini greiða Leeds í fínum málum eftir fyrri leikinn „Skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby“ Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Sjá meira