Leggur til að „Reykingar drepa“ verði prentað á hverja einustu sígarettu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. október 2021 07:32 „Við vitum að sígarettur eru krabbameinsstautar,“ segir þingmaðurinn á bakvið tillögurnar. Getty Þingmenn í báðum deildum breska þingsins hafa lagt fram tillögur um að sígarettuframleiðendur verði skikkaðir til að prenta „Reykingar drepa“ eða „Reykingar valda krabbameini“ á hverja einustu sígarettu. „
Við vitum að sígarettur eru krabbameinsstautar og draga helming þeirra sem nota þær til dauða. Þannig að ég bind vonir við að viðvaranir á sígarettum myndu forða fólki frá því að láta freistast að byrja að reykja og þá sérstaklega ungu fólki,“ segir Mary Kelly Foy, þingmaður Verkamannaflokksins. Foy hefur lagt fram viðauka við heilbrigðisfrumvarp sem er til umræðu í þinginu. Hún segist jafnframt vonast til þess að vekja þá til umhugsunar sem þegar reykja að sjá skilaboðin á sígarettunni í hvert sinn sem þeir stinga henni upp í sig. Tillaga Foy nýtur stuðnings Royal College of Physicians, samtaka sjúkrahúslækna, og Cancer Research UK. Er hún talin myndu þoka Bretlandseyjum nær því markmiði að verða „reyklaust“ árið 2030 en það miðar að því að minnka hlutfall reykingarfólks úr 14 prósentum í 5 prósent. Áþekk tillaga liggur fyrir lávarðadeildinni en tillaga Foy felur einnig í sér að stjórnvöldum yrði veitt vald til að skattleggja sérstaklega hagnað tóbaksfyrirtækja, til að fjármagna baráttuna gegn tóbaksnotkun. Þá yrðu aldursmörkin færð úr 18 í 21 ár og framleiðendum rafsígaretta bannað að freista ungs fólks með bragðtegundum og aðlaðandi umbúðum. Guardian greindi frá.
Bretland Heilbrigðismál Áfengi og tóbak Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Sjá meira