Rafhlaupahjólin best hlaðin á afviknum stað vegna eldhættu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. september 2021 12:32 Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir vænlegast að rafhlaupahjól séu sett í hleðslu á afviknum stað fremur en inni í íbúðum fólks. Vísir/Samsett Veruleg hætta getur stafað af raftækjum sem eru í hleðslu inni á heimilum fólks. Eldur kom upp í íbúð á föstudag sem talinn er hafa kviknað út frá rafhlaupahjóli sem þar var í hleðslu.
Töluverður eldur kom upp í íbúð að Bríetartúni á föstudaginn. Meginkenning lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er sú að eldurinn hafi kviknað út frá rafhlaupahjóli sem var í hleðslu í íbúðinni. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, varar við því að fólk hlaði slík farartæki inni í íbúðum sínum. „Fólk þarf að fara varlega og hlaða þessi tæki þar sem er eins öruggt og hægt er. Menn þurfa aðvera mjög passasamir að þetta liggi ekki utan í einhverju öðru, og það séu ekki settar flíkur yfir viðkomandi grip,“ segir Jón Viðar. Slökkviliðið hafi verið kallað út nokkrum sinnum vegna elds sem hafi kviknað út frá rafhlaupahjólum eða rafhjólum. Eldur geti þó einnig kviknað út frá minni tækjum, eins og símunum okkar. „Þá höfum við minnisstætt útkall þar sem síminn var uppi í rúmi hjá viðkomandi og var í hleðslu. Svo kom í ljós við nánari skoðun að snúran var orðin trosnuð, hún var orðin léleg snúran sjálf. Það er að mörgu að hyggja í þessum málum. “ Stóru raftækin best hlaðin á afviknum stað Fólk verði alltaf að vera vakandi fyrir hættunum sem stafi af raftækjum á heimilinu. „Athuga hvort allar snúrur og tæki séu eitthvað farin að gefa sig, svo er gott að finna hvort sé einhver hitamyndun í gangi en aðalmálið er auðvitað að vera með þetta á þannig stað að það stafi sem minnst hætta af því,“ segir Jón Viðar. Þá sé ekki síður mikilvægt að fólk tryggi að reykskynjarar séu til staðar á heimilum, þeir séu í lagi, en best væri þó að hlaða þessi stóru raftæki á afviknum stað, til dæmis inni í bílskúr eða slíku rými. Greint var frá því á föstudag að rúða í íbúðinni að Bríetartúni hafi sprungið. Jón Viðar segir óljóst hvort sprengingin hafi verið út frá hlaupahjólinu sjálfu eða vegna gasefna sem losnuðu við eldinn. „Það er nú ekki alveg vitað hvort sprengingin hafi verið út frá viðkomandi hlut sem kviknaði í eða hvort það voru gösin sem mynduðust þarna og voru að valda sprengingunni, það er ekki alveg vitað en það er ekki hægt að útiloka eitt eða neitt í þessu,“ segir Jón Viðar.
Slökkvilið Reykjavík Rafhlaupahjól Tengdar fréttir Grunur um að eldur hafi kviknað út frá rafhlaupahjóli Búið er að slökkva eld sem kom upp í íbúð að Bríetartúni 9 til 11. 17. september 2021 19:55 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Sjá meira
Grunur um að eldur hafi kviknað út frá rafhlaupahjóli Búið er að slökkva eld sem kom upp í íbúð að Bríetartúni 9 til 11. 17. september 2021 19:55