Magnaður leikur Embiids dugði ekki til

Draymond Green, leikmaður Golden State og Joel Embiid, leikmaður Philadelphia, …
Draymond Green, leikmaður Golden State og Joel Embiid, leikmaður Philadelphia, heilsast að leik loknum í nótt. AFP/Kavin Mistry

Tiu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en Golden State Warriors vann m.a. sigur á Philadelphia 76'ers.

Joel Embiid var algjörlega magnaður í liði Philadelphia en það dugði þó ekki til. Embiid skoraði 46 stig, tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar en þrátt fyrir það vann Golden State átta stiga sigur. Jordan Poole var stigahæstur í liði Golden State með 33 stig en Steph Curry skoraði 29 stig.

Los Angeles Lakers unnu þá góðan fimm stiga sigur á Oklahoma City Thunder þar sem Anthony Davis dró vagninn. Hann skoraði 37 stig, en LeBron James lék ekki með Lakers vegna meiðsla.

Öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan:

Indiana Pacers 95:120 Boston Celtics

San Antonio Spurs 124:136 Washington Wizards

Detroit Pistons 97:118 Toronto Raptors

Houston Rockets 114:151 Memphis Grizzlies

Charlotte Hornets 117:109 Dallas Mavericks

Milwaukee Bucks 144:116 Utah Jazz

Philadelphia 76'ers 112:120 Golden State Warriors

Chicago Bulls 124:96 Portland Trail Blazers

Phoenix Suns 127:135 Sacramento Kings

Oklahoma City Thunder 111:116 Los Angeles Lakers.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert