Segir ósanngjarnt að hann sé í fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2021 11:28 Richard „Bigo“ Barnett á skrifstofu Nancy Pelosi. EPA/JIM LO SCALZO Richard Barnett, sem naut fimmtán mínútna heimsfrægðar í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, er ekki sáttur við að sitja í fangelsi. Hann missti stjórn á sér í dómsal í gær og gargaði á dómara í gegnum fjarfundarbúnað að hann ætti ekki að þurfa að sitja inni fram að réttarhöldum.
Barnett var einn þeirra sem ruddi sér leið inn í þinghúsið sjálft, vopnaður rafmagnsbyssu, og fór inn á skrifstofu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Þar settist hann meðal annars í stól hennar fyrir myndatökur, stal umslagi af borði hennar og skrifaði skilaboð til hennar þar sem hann kallaði hana tík. Mynd af honum sitja við skrifborð Pelosi fór eins og eldur í sinu um internetið. Hann var handtekinn innan við viku síðar og hefur lýst því yfir að hann sé saklaus. Um þrjú hundruð manns hafa verið ákærð vegna árásarinnar hingað til. Mörg þeirra hafa kvartað hástöfum yfir hvernig komið hefur verið fram við þau. Ein kona frá Texas kvartaði til að mynda nýverið yfir því að hafa verið „útskúfuð“ (e. canceled) og að hún hafi ekki fengið að að fara í frí til Mexíkó. Barnett fór fyrir dómara á fjarfundi nýverið og öskraði hann á dómarann að ríkisstjórnin væri að draga mál hans á langinn en sleppa öllum öðrum úr haldi. Það væri ekki sanngjarnt. Hann sagði málaferlin gegn sér hafa verið algjört rugl, samkvæmt frétt Washington Post. Saksóknarar segja hættu á því að Bernett flýi, verði honum sleppt úr haldi. Það er byggt á því að hann sagði rannsakendum eftir að hann var handtekinn að eftir árásina á þinghúsið hefði hann keyrt til Arkansas, slökkt á síma sínum, notað einungis reiðufé og hulið andlit sitt. Þá sagði hann að lögregluþjónar fyndu ekkert merkilegt á heimili hans, því hann væri „gáfaður maðurׅ“ og hefði flutt byssur sínar. USA Today hefur eftir lögmanni Barnett að hann ætlaði að krefjast þess áfram að skjólstæðingi sínum yrði sleppt úr haldi og þóttist viss um að skammlíf frægð hans í kjölfar árásarinnar sé meðal ástæðna þess að honum hafi ekki verið sleppt. „Þetta eru Bandaríkin. Þú ert saklaus þar til sannað sé að þú sért sekur. Án þessarar myndar, held ég að hann væri laus. Já, ég held það,“ sagði lögmaðurinn Joseph McBride.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Árás á bandaríska þinghúsið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Fleiri fréttir Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Sjá meira