Veislugestir í sendiráðinu í Vín steinhissa á píanóspili Snorra Jakob Bjarnar skrifar 26. september 2022 10:23 Óhætt er að segja að Snorri hafi komið veislugestum í opna skjöldu. Myndlistarmaðurinn og stjórnmálamaðurinn Snorri Ásmundsson kom virðulegum menningarvitum í Austurríki í opna skjöldu með Vínartónleikum sínum.
Fyrir viku var haldin afar virðuleg og menningarleg samkoma, kvöldverður í bústað sendiherra Íslands í Austurríki, en tilefnið voru samsýningar og kynning á íslenskri list. Samkoman var eins fín og fínt getur orðið, eins menningarleg eins og menningarlegt getur orðið. Óhætt er að segja að Snorri hafi komið viðstöddum í opna skjöldu með atriði sínu. „Viðtökurnar voru blendnar því fólkið átti meira von á klassískum píanóleik. En nokkrir urðu himinlifandi og ánægðir,“ segir Snorri í samtali við Vísi. En hvernig skilgreinir hann atriði sitt, eru þetta tónleikar eða gjörningur? „Bæði. Eða, ég kalla þetta Vínartónleika. Þetta er píanó performance,“ segir Snorri. Viðburðurinn hefur verið birtur á YouTube og má sjá í heild sinni hér neðar. Vínartónleikar Snorra taka um 14 mínútur og, eins og stundum er sagt við myndskeið á netinu: „Wait for it!“ Snorra var boðið að koma fram við þetta tækifæri og var kynntur sem besti píanóleikari Evrópu. „Þarna voru hinir ýmsir sýningarstjórar og blaðamenn frá Austurríki ásamt listamönnum og sendiherranum Kristínu Árnadóttur sem stóð fyrir viðburðinum,“ segir Snorri og er harla ánægður með hvernig til tókst. Og þegar hefur verið fjallað um hinn menningarlega viðburð í austurísku pressunni. Lofsamlega. Menningarblaðamaður Die Presse er afar hrifinn af besta píanóleikara Evrópu.skjáskot „Já, Die Presse fjallaði um þetta. Mjög virtur blaðamaður sem þetta skrifaði,“ segir Snorri. Atriði hans hefur sem sagt vakið mikla og verðskuldaða athygli enda reif Snorri veisluna upp í áður óþekktar hæðir. „Já, heldur betur. Lífgaði upp á heldur steríla samkomuna.“ Í kjölfarið hefur Snorri verið pantaður sérstaklega í fleiri veislur, fleiri viðburði af þessu tagi þar sem hann mun koma fram sem besti píanóleikari í Evrópu.
Austurríki Myndlist Tónlist Íslendingar erlendis Sendiráð á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Lífið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira