Valdimar vill leiða Framsókn í Hafnarfirði

Valdimar Víðisson vill leiða Framsókn í Hafnarfirði.
Valdimar Víðisson vill leiða Framsókn í Hafnarfirði. Ljósmynd/Aðsend

Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla, sækist eftir að leiða Framsókn í Hafnarfiðri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frá þessu greinir  Valdimar á Facebook-síðu sinni í dag.

Valdimar skipaði annað sæti á lista flokksins í síðustu kosningum, og er varabæjarfulltrúi. Ágúst Bjarni Garðarsson sem leiddi lista Framsóknar síðast hlaut í haust kjör á Alþingi og sækist þar af leiðandi ekki eftir endurkjöri. 

„Ég hef brennandi áhuga á bæjarmálum og samfélagsmálum almennt. Síðustu 4 ár hef ég starfað sem formaður fjölskylduráðs. Ég hef áhuga á að láta enn meira að mér kveða á þessum vettvangi og gef því kost á mér í þetta verkefni.

Ég tel mig eiga fullt erindi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ég hef tæplega 20 ára reynslu sem skólastjóri, í fámennum og fjölmennum skóla. Sú reynsla hefur nýst mér afar vel þessi tæpu 4 ár sem ég hef látið að mér kveða á vettvangi stjórnmálanna. Fyrir utan þessi störf hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, bæði á hinu pólitíska sviði og eins í skólamálum,“ segir í færslu Valdimars. 

Þar kemur fram að hann flutti í  Hafnarfjörð árið 2008.  „Er giftur Sigurborgu Geirdal. Á einn son, tvær stjúpdætur og tvö barnabörn. Ég fann strax og ég flutti hingað að hér ætti ég heima. Hafnarfjörður er dásamlegur staður þar sem gott er að búa.“  Að Valdimar vilji leggja sitt af mörkum til að Hafnarfjörður verði áfram eftirsóknarverður staður til að búa á, að unnið verði að því að eyða biðlistum eftir húsnæði fyrir fatlað fólk, að öflugu íþróttastarfi, og að í Hafnarfirðir verði leik- og grunnskólar í fremstu röð.

Færslu Valdimars má lesa hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert