Tuttugu farþegar færðir í aðra flugvél

Minni flugvél, var til taks á Keflavíkurflugvelli og því ákveðið …
Minni flugvél, var til taks á Keflavíkurflugvelli og því ákveðið að láta hana fljúga í skarðið. Það var þó ekki pláss fyrir alla farþegana. Sigurður Bogi

Tuttugu farþegar Icelandair, sem áttu bókað til Zürich í Sviss í morgun, voru færðir yfir í aðra flugvél sem flaug þess í stað fyrst til Amsterdam og svo þaðan til Zürich.

Guðni Sigurðsson, sérfræðingur á upplýsingasviði Icelandair, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Hann segir ástæðuna mega rekja til manneklu og álags á flugvöllum erlendis. Það hafi valdið því að flugvélinni, sem átti að fljúga með farþegana til Zürich, seinkaði. 

Ekki pláss fyrir alla

Minni flugvél var til taks á Keflavíkurflugvelli og því ákveðið að láta hana fylla í skarðið. Það var þó ekki pláss fyrir alla farþegana og því varð að flytja tuttugu farþega í annað flug. 

„Við leggjum áherslu á að valda sem minnstum óþægindum.“

Guðni segir að þeir farþegar sem hafa bókað flug með Icelandair til áfangastaðar með millilendingu í Zürich, séu í forgangi þegar kemur að því að koma þeim á lokaáfangastað, enda liggja þá fyrir gögn í kerfi Icelandair um tengiflugið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert