Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna búa sig undir óeirðir Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 16. janúar 2021 19:43 Þjóðvarðlið Bandaríkjanna hefur safnast saman í Washington DC vegna mögulegra vopnaðra mótmæla á morgun og miðvikudag. Getty/Eric Thayer Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna auk Washington DC eru viðbúin vegna mótmæla sem búast má við um helgina. Talið er að óeirðir geti brotist út en andstæðingar Joe Bidens verðandi Bandaríkjaforseta stefna á götur út til að mótmæla embættistöku forsetans verðandi.
Þjóðvarðliðssveitir frá öllum landshlutum hafa verið sendar til Washington DC í von um að hægt verði að komast hjá banvænum óeirðum, líkt og fóru fram þann 6. janúar síðastliðinn þegar múgur réðst inn í þinghús Bandaríkjanna. Alríkislögreglan, FBI, hefur varað fólk við því að stuðningsmenn Donalds Trumps séu líklegir til þess að vera vopnaðir á mótmælunum. Mikill viðbúnaður er í öllum 50 höfuðborgum ríkja Bandaríkjanna vegna þessa. Vegatálmum hefur verið komið upp víða um Washington og löggæsluaðilar eru í viðbragðsstöðu. Starfsmenn Bidens hafa hvatt fólk til þess að ferðast ekki til höfuðborgarinnar vegna kórónuveirufaraldursins og starfsmenn Hvíta hússins hafa beðið fólk um að horfa á innsetningarathöfnina, sem fer fram á miðvikudag, heima hjá sér í stað þess að mæta á staðinn. Talið er að mikil mótmæli muni fara fram víða um Bandaríkin á morgun, sunnudag. Færslur á spjallborðum stuðningsmanna Trumps og öfgahægrihópa hafa hvatt til vopnaðra mótmæla þann 17. janúar auk vopnaðra mótmæla á innsetningardaginn, þann 20. janúar. Einhverjir vopnaðir hópar hafa samkvæmt frétt BBC biðlað til meðlima sinna að taka ekki þátt í mótmælunum vegna mikils viðbúnaðar lögreglu og þjóðvarðliðs. Einhverjir hafa sagt mótmælin, sem skipulögð eru af stuðningsmönnum Trumps, gildru til þess gerða að narra stuðningsmenn hans.
Bandaríkin Joe Biden Tengdar fréttir Reiður yfir því að enginn komi honum til varnar Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður vera reiður út í starfsmenn sína og bandamenn á lokadögum forsetatíðar sinnar. Hann er sérstaklega reiður yfir því hve fáir hafa komið honum til varnar í tengslum við það að í gær var hann í annað sinn ákærður fyrir embættisbrot. 14. janúar 2021 21:10 Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld að ákæra Donald Trump, fráfarandi forseta, fyrir embættisbrot vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í síðustu viku. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins gengu til liðs við Demókrata í atkvæðagreiðslunni. 13. janúar 2021 21:24 FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. 11. janúar 2021 22:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira
Reiður yfir því að enginn komi honum til varnar Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður vera reiður út í starfsmenn sína og bandamenn á lokadögum forsetatíðar sinnar. Hann er sérstaklega reiður yfir því hve fáir hafa komið honum til varnar í tengslum við það að í gær var hann í annað sinn ákærður fyrir embættisbrot. 14. janúar 2021 21:10
Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld að ákæra Donald Trump, fráfarandi forseta, fyrir embættisbrot vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í síðustu viku. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins gengu til liðs við Demókrata í atkvæðagreiðslunni. 13. janúar 2021 21:24
FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. 11. janúar 2021 22:30