„Finnst ég vera einn besti hornamaðurinn í þýsku deildinni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2021 11:15 Bjarki Már Elísson fagnar í ótrúlegum sigri Lemgo á Kiel í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í síðustu viku. getty/Axel Heimken Bjarki Már Elísson kveðst ánægður í herbúðum Lemgo en hefur áhuga á að reyna sig á stærra sviði.
Bjarki er nýkrýndur bikarmeistari með Lemgo en hann skoraði tíu mörk á úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Sex þeirra komu í ævintýralegum sigri á Kiel í undanúrslitunum, 29-28. Lemgo var sjö mörkum undir í hálfleik, 18-11, en vann seinni hálfleikinn með átta mörkum. Bjarki, sem er á sínu öðru tímabili með Lemgo, framlengdi samning sinn við félagið í febrúar um eitt ár. „Það er ekkert leyndarmál að mig hefur alltaf dreymt um að spila í Meistaradeildinni. Ég hef ekki enn náð því. En þar sem það var erfitt ástand í öllum handboltaheiminum og íþróttalífinu vegna kórónuveirunnar var það besta í stöðunni að framlengja allavega um eitt ár og sjá svo til,“ sagði Bjarki sem fer ekkert í felur með hann langi til að spila fyrir stærra félag. „Mig dreymir um það en það getur vel verið að ég verði hérna áfram. Ég hef ekkert ákveðið en mig langar það.“ Bjarki segir að það hafi verið mikið gæfuspor þegar hann fór frá Füchse Berlin og gekk í raðir Lemgo 2019. Hann varð markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar í fyrra og er nú bikarmeistari. Sem hornamaður ertu dæmdur af mörkunum „Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum frá íþróttalegum sjónarmiðum, eins leiður og maður var að fara frá Berlín þar sem okkur fjölskyldunni leið frábærlega,“ sagði Bjarki sem segir að leikstíll Lemgo henti sér betur. „Sem hornamaður ertu háður öðrum leikmönnum og hjá Berlín var ég ekki í nógu stóru hlutverki. Sem hornamaður ertu dæmdur af mörkunum sem þú skorar. Þau telja og ég varð að komast í stærra hlutverk. Mér finnst ég vera einn besti hornamaðurinn í þýsku deildinni og held að ég hafi náð að sýna það síðan ég kom hingað.“ Bjarki segir að nokkur félög hafi sýnt sér áhuga. „Það var einhver möguleiki áður en ég framlengdi hérna í febrúar en ekkert sem mér fannst nógu heillandi til að fara. Ef ég ætla að fara héðan vil ég fara í algjört elítufélag,“ sagði Bjarki að lokum.
Þýski handboltinn Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Fleiri fréttir Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti