Kría sendir pillu á Gróttu og Seltjarnarnesbæ - „Ný lið eru ekki velkomin“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. júlí 2021 16:05 Handknattleikslið Kríu hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að liðið muni ekki vera á meðal keppnisliða í Olís-deild karla á næsta tímabili, og hefur félagið verið lagt niður. Það er vegna aðstöðuleysis þar sem félagið sendir væna pillu til bæði Gróttu og bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Kría var stofnuð fyrir tveimur árum af leikmönnum sem höfðu leikið saman um árabil í yngri flokkum Gróttu með góðum árangri. Liðið fékk aðstöðu hjá Gróttu undir æfingar sínar og leiki í neðri deildunum. Liðið náði frábærum árangri í vetur er það vann sér sæti í Olís-deildinni eftir sigur á Víkingi í umspili en í yfirlýsingunni segir að vikurnar eftir að sætið var tryggt hafi verið strembnar. „Vikurnar eftir að liðið tryggði sæti sitt í deildinni hófu forsvarsmenn liðsins strax vinnu við þátttöku liðsins í Olís-deildinni enda var alltaf stefnan frá upphafi sett á að taka þátt, þrátt fyrir orð ýmissa sófasérfræðinga sem haldið hafa öðru fram síðastliðna daga og í raun frá upphafi,“ segir í yfirlýsingu Kríu. Uppfært: Grótta hefur svarað yfirlýsingu Kríu sem sjá má hér. #Kría4life pic.twitter.com/QyMyQTw4gn— Kría - Handbolti (@KHandbolti) July 25, 2021 Sú vinna gekk hins vegar ekki eins vel og vonast var til. Kría fékk ekki þá tíma sem félagið óskaði eftir hjá Gróttu, engin lausn fannst, jafnvel þegar leitað var til Seltjarnarnesbæjar, og leituðu Kríumenn því annað. „Fyrrum samstarfsfélag okkar, Grótta, sá okkur ekki sem verðugan samstarfsaðila fyrir komandi vetur og töldu kröfu okkar um 2x æfingatíma í viku og 11 heimaleiki yfir 10 mánaða tímabil til of mikils ætlað og þrátt fyrir að við höfum spilað stoltir með merki Seltjarnarness á bringunni þá höfðu bæjaryfirvöld takmarkaðan áhuga á að beita sér í málinu og urðum við því án heimavallar,“ „Forsvarsmenn liðsins létu ekki deigan síga og ræddu við 8 íþróttafélög og ýmis bæjarfélög með það að markmiði að komast að, æfa og verðar fulltrúar þeirra í efstu deild handboltans.“ Hvergi komst Kría að og var ákvörðunin því tekin að draga liðið úr keppni í Olís-deildinni, líkt greint var frá fyrr í vikunni. Liðið verður þá lagt niður þar sem það hefur hvergi aðstöðu. Í tilkynningunni segir að þetta sé öðrum liðum víti til varnaðar. „Við vonum einnig að Kría verði íþróttahreyfingunni víti til varnaðar. Ný lið í dag eru ekki velkomin, þau raska of miklu og er enginn vettvangur fyrir ný lið að feta sér rúms og ná árangri. Það er okkar von að uppgangur Kríu auðveldi næsta býja liði sem er til í að taka slaginn að komast að.“ segir í tilkynningunni sem má sjá í heild sinni að ofan. Víkingur frá Reykjavík þykir líklegastur til að taka sæti Kríu í Olís-deildinni en liðið er fremst í röðinni samkvæmt reglum HSÍ eftir að hafa tapað í umspilinu. Næst á eftir koma Þór frá Akureyri og ÍR sem féllu úr Olís-deildinni í vor. Víkingur var síðast í efstu deild veturinn 2017-18 og féll þá aftur niður á fyrsta ári. Þá hlaut liðið sæti í deildinni við svipaðar aðstæður þegar KR dró lið sitt úr keppni vegna aðstöðumála, rétt eins og Kría nú. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Kría Grótta Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn „Það er ekkert plan B“ Handbolti Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Fleiri fréttir „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sjá meira
Kría var stofnuð fyrir tveimur árum af leikmönnum sem höfðu leikið saman um árabil í yngri flokkum Gróttu með góðum árangri. Liðið fékk aðstöðu hjá Gróttu undir æfingar sínar og leiki í neðri deildunum. Liðið náði frábærum árangri í vetur er það vann sér sæti í Olís-deildinni eftir sigur á Víkingi í umspili en í yfirlýsingunni segir að vikurnar eftir að sætið var tryggt hafi verið strembnar. „Vikurnar eftir að liðið tryggði sæti sitt í deildinni hófu forsvarsmenn liðsins strax vinnu við þátttöku liðsins í Olís-deildinni enda var alltaf stefnan frá upphafi sett á að taka þátt, þrátt fyrir orð ýmissa sófasérfræðinga sem haldið hafa öðru fram síðastliðna daga og í raun frá upphafi,“ segir í yfirlýsingu Kríu. Uppfært: Grótta hefur svarað yfirlýsingu Kríu sem sjá má hér. #Kría4life pic.twitter.com/QyMyQTw4gn— Kría - Handbolti (@KHandbolti) July 25, 2021 Sú vinna gekk hins vegar ekki eins vel og vonast var til. Kría fékk ekki þá tíma sem félagið óskaði eftir hjá Gróttu, engin lausn fannst, jafnvel þegar leitað var til Seltjarnarnesbæjar, og leituðu Kríumenn því annað. „Fyrrum samstarfsfélag okkar, Grótta, sá okkur ekki sem verðugan samstarfsaðila fyrir komandi vetur og töldu kröfu okkar um 2x æfingatíma í viku og 11 heimaleiki yfir 10 mánaða tímabil til of mikils ætlað og þrátt fyrir að við höfum spilað stoltir með merki Seltjarnarness á bringunni þá höfðu bæjaryfirvöld takmarkaðan áhuga á að beita sér í málinu og urðum við því án heimavallar,“ „Forsvarsmenn liðsins létu ekki deigan síga og ræddu við 8 íþróttafélög og ýmis bæjarfélög með það að markmiði að komast að, æfa og verðar fulltrúar þeirra í efstu deild handboltans.“ Hvergi komst Kría að og var ákvörðunin því tekin að draga liðið úr keppni í Olís-deildinni, líkt greint var frá fyrr í vikunni. Liðið verður þá lagt niður þar sem það hefur hvergi aðstöðu. Í tilkynningunni segir að þetta sé öðrum liðum víti til varnaðar. „Við vonum einnig að Kría verði íþróttahreyfingunni víti til varnaðar. Ný lið í dag eru ekki velkomin, þau raska of miklu og er enginn vettvangur fyrir ný lið að feta sér rúms og ná árangri. Það er okkar von að uppgangur Kríu auðveldi næsta býja liði sem er til í að taka slaginn að komast að.“ segir í tilkynningunni sem má sjá í heild sinni að ofan. Víkingur frá Reykjavík þykir líklegastur til að taka sæti Kríu í Olís-deildinni en liðið er fremst í röðinni samkvæmt reglum HSÍ eftir að hafa tapað í umspilinu. Næst á eftir koma Þór frá Akureyri og ÍR sem féllu úr Olís-deildinni í vor. Víkingur var síðast í efstu deild veturinn 2017-18 og féll þá aftur niður á fyrsta ári. Þá hlaut liðið sæti í deildinni við svipaðar aðstæður þegar KR dró lið sitt úr keppni vegna aðstöðumála, rétt eins og Kría nú. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Kría Grótta Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn „Það er ekkert plan B“ Handbolti Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Fleiri fréttir „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sjá meira