Hvalfjarðargöngum lokað vegna malbikunar

Hvalfjarðargöng.
Hvalfjarðargöng. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Hvalfjarðargöngum verður lokað vegna malbikunar í næstu viku. 

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að göngin verði lokuð mánudagskvöldið 26. júlí frá klukkan 22 og fram til klukkan 7 á þriðjudagsmorgun 27. júlí. 

Víða um land er nú unnið að viðhaldi vega og hraði er tekinn niður á þeim köflum. Vegfarendur eru beðnir um að virða þær hraðatakmarkanir og halda steinkasti í lágmarki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert