Leiddur fyrir dómara

Lögreglan að störfum í morgun fyrir utan verslunarmiðstöðina.
Lögreglan að störfum í morgun fyrir utan verslunarmiðstöðina. AFP/Mads Claus Rasmussen / Ritzau Scanpix

Karlmaðurinn sem var handtekinn í gær vegna skotárásar í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn var leiddur fyrir dómara í morgun.

Þar las saksóknari upp ákæru yfir honum vegna árásarinnar. Var hann ákærður fyrir að hafa myrt þrjár manneskjur og fyrir fjórar morðtilraunir.

Dómarinn lagði bann við því að nafngreina manninn í fjölmiðlum vegna þess hve rannsókn málsins er skammt á veg komin. Ekki má heldur nafngreina fórnarlömbin að svo stöddu. 

Reyndi að fá aðstoð

Samkvæmt upplýsingum danska ríkisútvarpsins reyndi maðurinn að ná sambandi við hjálparsíma skömmu fyrir árásina.

Danska lögreglan vildi ekki tjá sig um málið en yfirlögregluþjónninn Søren Thomassen sagði á blaðamannfundi í morgun að eitthvað þessu tengt sjáist í myndskeiðum sem hafa verið birt frá vettvangi, en maðurinn hefur átt við andleg veikindi að stríða.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert