Innlent

Mikil aðsókn í opna húsið

Bjarki Sigurðsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Það myndaðist löng röð fyrir utan Álfabakka 14a klukkan 13 þegar bólusetningar hófust.
Það myndaðist löng röð fyrir utan Álfabakka 14a klukkan 13 þegar bólusetningar hófust. Vísir/Egill

Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við.

Tala þeirra sem veikjast alvarlega í kjölfar Covid-19 smits hefur farið hækkandi seinustu daga, þá sérstaklega meðal þeirra sem eru áttatíu ára og eldri og eiga eftir að fá fjórða skammtinn af bóluefni. Því var opið hús í bólusetningu í Álfabakka 14a fyrir þann hóp og þá sem eru í áhættuhóp vegna undirliggjandi sjúkdóma.

Það kom Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur á óvart hversu margir mættu í dag.Vísir/Egill

„Þetta var miklu meiri aðsókn en við áttum von á, gleðilegt að fólk sé að taka við sér og koma í fjórða skammtinn. Við erum strax á fyrsta hálftímanum búin að taka við fimm hundruð manns,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í samtali við fréttastofu.

Þó geta sömu hópar enn pantað tíma hjá sinni heilsugæslu í bólusetningu. Opna húsið er einungis hugsað sem viðbót.

„Við erum með nítján heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu þar sem allir eru að taka þátt í bólusetningum og þetta átti bara að vera auka úrræði. Það eru margir sem vilja koma án þess að hringja, panta tíma og bóka og það var greinilega að virka í dag. Við þurfum að halda svona opin hús oftar,“ segir Ragnheiður.

Bólusetningarýmið í Álfabakka.Vísir/Egill

Mikill fjöldi fólks mætti á opna húsið og myndaðist löng röð í rigningunni fyrir utan Álfabakka. Aðsóknin kom Ragnheiði á óvart þar sem það hefur verið dræm mæting í bólusetningar á heilsugæslustöðvunum hingað til.

„Það hefur verið nóg af lausu plássi en Þórólfur kom í sjónvarpið og þetta hefur verið að aukast síðustu daga og Landspítalinn að segja frá og þetta virkar allt.“


Tengdar fréttir

Opið hús í fjórða skammtinn næstu tvær vikurnar

Vegna mikillar aðsóknar í fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19 verður opið hús í bólusetningar fyrir áttatíu ára og eldri, og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma næstu tvær vikurnar. Bólusetningin fer fram í Álfabakka 14a á 2. hæð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×