Stoltur liðsfélagi Gylfa: Við skrifuðum söguna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2021 13:00 James Rodriguez og Gylfi Sigurðsson standa við boltann í aukaspyrnu Everton fyrr á tímabilinu. Getty/Tony McArdle James Rodriguez var ánægður í viðtölum við fjölmiðla í heimalandi sínu Kólumbíu eftir 2-0 sigur Everton á Anfield um helgina.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði seinna mark Everton í leiknum en James Rodriguez lagði upp það fyrra fyrir Brasilíumanninn Richarlison. Everton vann þarna sinn fyrsta sigur á Anfield á þessari öld (sá síðasti vannst 1999) og sinn fyrsta sigur á Liverpool eftir tuttugu leikja bið.Everton náði líka Liverpool að stigum og á að auki leiki inni á nágranna sína. „Þetta var mjög erfiður leikur. Það vita allir að Liverpool er með frábært lið. Ég tel að þeir séu eitt af þeim þremur liðum sem spila besta fótboltann í dag,“ sagði James Rodriguez í viðtali við blaðamann Marca Claro í Kólumbíu. The merseyside derby is ours. pic.twitter.com/VBBYLUXfcc— James Rodríguez (@jamesdrodriguez) February 20, 2021 „Ég er ánægður með að hafa hjálpað liði mínu að vinna leikinn í dag. Everton hafði ekki unnið á Anfield síðan 1999 svo við skrifum söguna í þessum leik. Ég var ánægður að fá að hafa tekið þátt í því. Ég vona að okkur gangi vel áfram,“ sagði Rodriguez. Það voru einhverjar slúðurfréttir um óánægju hjá Kólumbíumanninum en hann segir ekkert til í því. „Ég er ánægður hérna. Við vitum öll að þetta er nýtt svið fyrir mig. Ég er næstum því orðinn þrítugur. Ég er ánægður með að fá að kynnast einhverju nýju og þetta safnast allt saman í púkkið,“ sagði Rodriguez. James Rodriguez | We ve made history I m happy I was there Everton star speaks to home country s media after Liverpool match. https://t.co/CSS2buwpKC #efc #coyb #lfc— Sport Witness (@Sport_Witness) February 21, 2021 „Það mun reyna á Everton á næstunni. Allir vita það að í ensku úrvalsdeildinni þá er leikur á þriggja daga fresti og hver leikur er eins og úrslitaleikur. Þú þarft að vera tilbúinn og nógu viljasterkur til að vinna,“ sagði Rodriguez. „Það eru leikir hjá okkur þar sem hlutirnir ganga vel og aðrir þar sem þeir ganga illa. Fótboltinn er samt mjög harður núna. Það eru lið sem hafa ekki mikil gæði en þau reyna að vinna með því að láta finna fyrir sér og brjóta af sér. Við erum tilbúnir í öllum leikjum og viljum spila góðan fótbolta,“ sagði James Rodriguez. James Rodriguez hefur komið að níu mörkum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili (5 mörk og 4 stoðsendingar) en Gylfi Þór Sigurðsson hefur komið að sex mörkum (4 mörk og 2 stoðsendingar). James Rodriguez becomes the first Everton player to assist a goal home AND away against Liverpool in the same Premier League season pic.twitter.com/Gb5BTsRCwq— ESPN UK (@ESPNUK) February 20, 2021
Enski boltinn Mest lesið Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Tók sinn tíma að jafna sig Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Sjá meira