Leikið í Dominos-deildinni á laugardag

Bikarmeistarar Skallagríms mæta Keflavík á laugardag.
Bikarmeistarar Skallagríms mæta Keflavík á laugardag. Ljósmynd/KKÍ/Jónas

Leikið verður í Dominos-deild kvenna í körfubolta laugardaginn 31. október en þá eigast við Skallagrímur og Keflavík í Borgarnesi klukkan 16:15. 

Verður leikurinn sá fyrsti í deildinni síðan 3. október, þegar öllu mótahaldi KKÍ var frestað vegna aðgerða stjórnvalda í baráttunni við kórónuveiruna. 

Á vefsíðu KKÍ kemur fram að næsti leikur verður hinn 5. nóvember er Keflavík og Snæfell mætast, en svo taka við landsleikir og annað hlé verður gert á deildinni. 

Skallagrímur hefur farið vel af stað í deildinni og unnið tvo fyrstu leiki sína gegn KR og Haukum, en Keflavík lék aðeins einn leik og fagnaði í honum sigri gegn KR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert