Fótbolti

Annað mark Kýpur tryggði liðinu fyrsta stigið

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kýpverska kvennalandsliðið í fótbolta nældi sér í sitt fyrsta stig í undankeppni HM í kvöld.
Kýpverska kvennalandsliðið í fótbolta nældi sér í sitt fyrsta stig í undankeppni HM í kvöld. Laurens Lindhout/Soccrates/Getty Images

Kýpverska kvennalandsliðið í fótbolta náði sér í sitt fyrsta stig í C-riðli okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 er liðið tók á móti Hvíta-Rússlandi. Lokatölur urðu 1-1, en þetta var aðeins annað markið sem Kýpur skorar í undankeppninni.

Anna Pilipenko kom gestunum frá Hvíta-Rússlandi yfir á 24. mínútu og staðan var því 1-0 í hálfleik. 

Filippa Savva jafnaði metin fyrir Kýpur eftir klukkutíma leik og þar við sat. Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli.

Hvíta-Rússland hefði jafnað íslensku stelpurnar að stigum með sigri, en liðið er nú með fjögur stig í fjórða sæti riðilsins eftir þrjá leiki. 

Kýpur situr hins vegar enn sem fastast á botni riðilsins, nú með eitt stig eftir fimm leiki. Liðið hefur skorað tvö mörk og fengið á sig 26. Þetta var fyrsta stig Kýpur í undankeppni frá árinu 2014 og því er líklega hægt að tala um kærkomið stig kýpverska liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×