Handbolti

Vísað af Hlíðarenda vegna ósæmilegrar framkomu

Sindri Sverrisson skrifar
Þorleifur Árni Björnsson, sem hér sést lyfta rauða spjaldinu í leik á síðustu leiktíð, dæmdi leik ungmennaliðs Vals og Harðar ásamt Ramunas Mikalonis. Þeir létu fækka um einn á áhorfendapöllunum vegna ósæmilegrar framkomu viðkomandi.
Þorleifur Árni Björnsson, sem hér sést lyfta rauða spjaldinu í leik á síðustu leiktíð, dæmdi leik ungmennaliðs Vals og Harðar ásamt Ramunas Mikalonis. Þeir létu fækka um einn á áhorfendapöllunum vegna ósæmilegrar framkomu viðkomandi. vísir/daníel

Handknattleiksdeild Harðar gæti átt yfir höfði sér refsingu vegna máls sem aganefnd HSÍ er með til skoðunar eftir leik ungmennaliðs Vals gegn Herði á Hlíðarenda fyrir viku.

Liðin áttust við í næstefstu deild karla, Grill 66-deildinni, þar sem Hörður vann að lokum þriggja marka sigur, 29-26.

Eftir leik sendu dómarar aganefnd HSÍ skýrslu „vegna framkomu forsvarsmanns Harðar“ á leiknum, að því er segir í tilkynningu frá aganefnd. Þar segir að forsvarsmanninum hafi verið vísað úr húsi af dómara vegna „ósæmilegrar framkomu“. Eftir því sem Vísir kemst næst fólst sú framkoma í köllum að dómurum og sjálfboðaliðum að störfum í Origo-höllinni.

Forsvarsmönnum Harðar var gefinn frestur til hádegis í dag til að svara fyrir sig. Ragnar Heiðar Sigtryggsson, framkvæmdastjóri félagsins, var á leiknum og segir það „furðulegt“ ef að málið leiði til refsingar fyrir félagið.

Lét í sér heyra þegar tónlist var spiluð í sóknum Harðar

Ragnar segir að ekki hafi verið um forsvarsmann Harðar að ræða heldur stuðningsmann, sem samkvæmt upplýsingum Vísis hefur þó starfað lengi fyrir félagið. 

Manninum hafi orðið heitt í hamsi í seinni hálfleik, meðal annars vegna þess að tónlist hafi verið spiluð í sóknum Harðar. Á handboltaleikjum er tónlist oft spiluð á milli sókna en lækka þarf í græjunum áður en ný sókn hefst.

„Það var verið að spila tónlist þegar okkar leikmenn voru byrjaðir að spila sókn, sem er bara bannað, og þessi stuðningsmaður benti bæði starfsmönnum og dómurum á það. Auðvitað féllu einhver orð en ekkert af því sem ég heyrði hefði að mínu viti átt að leiða til þess að viðkomandi yrði vikið úr húsi,“ segir Ragnar og bætir við:

„Við erum búnir að senda okkar svar til aganefndar. Það var pínu hiti í mönnum þegar það var kvartað undan starfsmönnum hússins. Kannski hefðu menn mátt gera það öðruvísi en það var hiti og mikil spenna í leiknum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×