Miley Cyrus og Dua Lipa sakaðar um að herma eftir tónlistarmyndbandi íslenskrar tónlistarkonu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. nóvember 2020 17:51 Til vinstri má sjá stillu úr tónlistarmyndbandi Miley Cyrus og Dua Lipa sem gefið var út í gær. Til hægri má sjá stillu úr tónlistarmyndbandi Dream Wife sem kom út í maí. Vísir
Tónlistarkonurnar Miley Cyrus og Dua Lipa gáfu í gær út tónlistarmyndband við lagið Prisoner. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema hvað, bresk-íslenska pönksveitin Dream Wife hefur sakað þær stöllur um að hafa hermt eftir tónlistarmyndbandi sveitarinnar við lagið So When You Gonna… Tónlistarmyndböndin tvö líkjast töluvert, en í þeim má annars vegar sjá hljómsveitarmeðlimi Dream Wife og hins vegar Cyrus og Dua Lipa flytja lögin í gegn um munn á annarri manneskju. Það er, sjónarhornið er slíkt að tennur ramma inn tónlistarkonurnar í báðum myndböndum, eins og sjá má á myndunum hér að neðan. View this post on Instagram A post shared by Dream Wife (@dreamwife) So When You Gonna… tónlistarmyndbandið var frumsýnt þann 20. maí síðastliðinn eins og stelpurnar í Dream Wife hafa bent á. Dream Wife deildi nokkrum skjáskotum á Instagram-síðu sinni, þar sem þær sýna hve tónlistarmyndböndin eru lík og eru stillurnar nærri nákvæmlega eins. Þá benda Dream Wife stöllur á það að bassaleikarinn í myndbandi Cyrus og Dua Lipa virðist vera stílíseruð í anda Alice Go, hljómsveitarmeðlims í Dream Wife. There s even an Alice look a like .... pic.twitter.com/yMf8uG566b— Dream Wife (@DreamWifeMusic) November 20, 2020 Hljómsveitina Dream Wife skipa þær Rakel Mjöll Leifsdóttir, Alice Go og Bella Podpadec. Eftir að skífa sveitarinnar So When You Gonna… kom út fyrr á þessu ári varð Rakel þriðja íslenska konan til þess að komast á listann yfir 20 vinsælustu plöturnar í Bretlandi. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem Cyrus hefur verið sökuð um stuld en í júní 2019 var hún gagnrýnd á Instagram eftir að Cyrus birti mynd af sér með köku sem á stendur „Abortion Is Healthcare,“ eða „Þungunarrof er heilbrigðisþjónusta.“ Bakarinn Becca Rea-Holloway, sem sérhæfir sig í „femínískum bakstri“ gagnrýndi söngkonuna fyrir að hafa stolið hugmyndinni hennar að kökuskreytingunni án þess að hafa nefnt hana á nafn. Það tíðkast á samfélagsmiðlum að fólk merki listamenn á myndir þar sem hermt er eftir sköpun þeirra. Í kjölfarið bað Cyrus Rea-Holloway formlega afsökunar og viðurkenndi að hún hefði óvart hermt eftir köku-hönnun hennar.
Höfundaréttur Tónlist Hollywood Bretland Tengdar fréttir Íslensk tónlist í nýjustu þáttaröð af Good Girls Í sjötta þætti nýjustu þáttaraðar Good Girls er að finna lagið Dior með Halleluwah. Lagið heyrist í lok þáttarins, sem var frumsýndur 22. mars á NBC en kom í sumar inn á Netflix. Halleluwah skipa þau Sölvi Blöndal og Rakel Mjöll Leifsdóttir og kom lagið út á samnefndri plötu árið 2013. 9. september 2020 12:00 Rakel er þriðja íslenska konan til að komast á breska vinsældarlista Rakel Mjöll Leifsdóttir er þriðja íslenska tónlistarkonan til að komast á listann yfir 20 vinsælustu plöturnar í Bretlandi. 11. júlí 2020 14:40 Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Sjá meira
Íslensk tónlist í nýjustu þáttaröð af Good Girls Í sjötta þætti nýjustu þáttaraðar Good Girls er að finna lagið Dior með Halleluwah. Lagið heyrist í lok þáttarins, sem var frumsýndur 22. mars á NBC en kom í sumar inn á Netflix. Halleluwah skipa þau Sölvi Blöndal og Rakel Mjöll Leifsdóttir og kom lagið út á samnefndri plötu árið 2013. 9. september 2020 12:00
Rakel er þriðja íslenska konan til að komast á breska vinsældarlista Rakel Mjöll Leifsdóttir er þriðja íslenska tónlistarkonan til að komast á listann yfir 20 vinsælustu plöturnar í Bretlandi. 11. júlí 2020 14:40