Fiskabúr í afmælisleik Skyrim

Grafík/Bethesda Games/The Elder Scrolls V: Skyrim

Tölvuleikjafyrirtækið Bethesda Games gefur út nýjan tölvuleik þann 11. nóvember, The Elder Scrolls V: Skyrim Anniversary Edition, til fögnuðar tíu ára afmæli leiksins The Elder Scrolls V: Skyrim.

Afrit af mörgum eldri leikjum

Leikurinn verður aðgengilegur á öllum helstu leikjatölvum og inniheldur hann afrit af öðrum leikjum úr The Elder Scrolls seríunni, til dæmis Special Edition, Dawnguard, Hearthfire og Dragonborn. En ólíkt Special Edition leiknum þarf að kaupa leikinn sér.

Fiskabúr á heimili leikmanna

Bethesda Games birti færslu á Twitter með stuttu myndbandi og tilkynningu um að fiskabúr verði aðgengileg á Hearthfire heimilum í leiknum og gefur það til kynna hvað hægt sé að gera við fiska sem einnig verður hægt að veiða innanleikjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert