Rekinn frá stjörnuliðinu

Frank Vogel er ei lengur þjálfari Phoenix Suns.
Frank Vogel er ei lengur þjálfari Phoenix Suns. AFP/Christian Pedersen

Körfuknattleiksþjálfarinn Frank Vogel hefur verið rekinn frá stjörnuliði Phoenix Suns í bandarísku NBA-deild karla í körfubolta. 

Vogel tók við liðinu síðasta sumar en miklar væntingar voru bundnar við Phoenix-liðið á þessu tímabili. 

Var liðið nú þegar með Kevin Durant og Devin Booker og bætti við sig Bradley Beal, þar með þriðju stjörnunni. 

Aftur á móti hafnaði liðið í sjötta sæti deildarinnar og tapaði, 4:0, fyrir Minnesota Timberwolves í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 

Vogel þjálfaði áður Indiana Pacers, Orlando Magic og Los Angeles Lakers þar sem hann vann NBA-deildina árið 2020. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert