Skýrsla Vals: Teknir til fanga í Zenica Valur Páll Eiríksson skrifar 23. mars 2023 23:35 Lítinn baráttuanda var að sjá hjá íslenska liðinu í kvöld. Getty Það er erfitt að segja til um hvort erfiðara hafi verið að eiga við reykmökkinn sem stóð upp af keðjureykjandi stuðningsfólki Bosníu í fangelsisbænum Zenica í kvöld eða frammistöðu íslenska landsliðsins.
Hert öryggisgæsla var á vellinum í kvöld vegna viðveru forseta bosníska knattspynusambandsins. Þungvopnaðir sérsveitarmenn höfðu fjölda hermanna sér til aðstoðar. Þeir þurftu þó lítið að aðhafast þar sem stuðningsmenn Bosníu sátu sem slakastir með kaffi og sígó er lið þeirra fór létt með Ísland í kvöld. Við verðum að byrja á byrjunarliðinu. Margur hafði áhyggjur þegar Arnór Ingvi Traustason hóf leikinn sem stakur djúpur miðjumaður, með tvo aðra framsækna miðjumenn með sér í Jóhanni Berg og Hákoni. Í stað þess að vera meira miðsvæðis til að stýra varnarleiknum var Guðlaugur Victor Pálsson þá í hægri bakverði á meðan þeir Daníel Leó Grétarsson og Hörður Björgvin Magnússon mönnuðu miðvarðarstöðurnar. Áhyggjurnar af varnarleiknum reyndust á rökum reistar þar sem Bosnía labbaði í gegnum vörn Íslands strax á fyrstu mínútu leiksins. Raunar hafði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður liðsins, leyst liðsfélaga sína úr snörunni í þrígang eftir aðeins tíu mínútna leik. Hann kom hins vegar engum vörnum við þegar Rade Krunic, leikmaður AC Milan, kom Bosníu verðskuldað yfir eftir fjórtán mínútna leik. Hann skoraði svo keimlíkt mark síðar í hálfleiknum, og í þeim báðum var mótstaða Íslands illsjáanleg. Það var í raun ekki sjón að sjá íslenska liðið. Maður áttaði sig illa á því hvaða leiðir átti að fara í sóknarleiknum, enginn þriggja (sóknarsinnaðra) miðjumanna komst í takt við leikinn fyrir hlé og þá vantaði alla baráttu, vilja og skipulag í varnarleikinn. Manni var býsna létt þegar hálfleiksflautið gall enda frammistaðan slök á báðum endum vallarins. Frammistaða sem einkenndist helst af leikmönnum sem þekktu illa hlutverk sín og tengdu illa saman í bæði vörn og sókn. Óvænt mætti óbreytt íslenskt lið til leiks eftir hléið. Íslenska liðið leit eilítið betur út framan af gegn Bosníumönnum sem lágu til baka. Hákon Arnar Haraldsson féll við á ögurstundu í dauðafæri sem fékkst gefins, sem einhvern veginn kjarnaði kvöldið. Ísland fékk loks færi, skapaði það ekki sjálft og það nýttist ekki. Í kjölfarið fer Bosnía í sína fyrstu sókn eftir hlé og skora þriðja markið enn á ný gegn lítilli sem engri mótstöðu. Annað sem kjarnaði kvöldið. Það verður að setja spurningamerki við upplegg liðsins þar sem sex léttir og framsæknir leikmenn byrjuðu leikinn. Arnar Þór Viðarsson, þjálfari liðsins, nefndi eftir leik að Ísland hefði verið undir í baráttu og einvígjum og það er sannarlega hægt að taka undir það - enda var Bosnía með áræðnari, ákveðnari, stærri og sterkari leikmenn inni á vellinum. Þá átta ég mig ekki á því hvaða leiðir áttu að skila marki. Þó vissulega hafi verið batamerki eftir hlé, en samt engin almennileg færi. Vonandi er hægt að byggja á því. Menn geta bent á það að Ísland hafi vantað bæði Aron Einar Gunnarsson og Sverri Inga Ingason í stöðurnar aftast á vellinum, en líkt og Arnar segir sjálfur í viðtali eftir leik er það engin afsökun. Ef okkur vantaði menn þá vantaði guði hjá Bosníu. Miralem Pjanic, Sead Kolasinac og Edin Dzeko voru þar allir fjarverandi. Úrslitin voru ekki góð en frammistaðan meira áhyggjuefni. Ísland átti engin svör við þéttri vörn Bosníu, voru skrefi á eftir hröðum sóknum liðsins og voru hreinlega eins og fangar í harðri gæslu heimamanna.
EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Mest lesið Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Gamlar hetjur taka fram skóna í bikarnum í dag Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Gamlar hetjur taka fram skóna í bikarnum í dag Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Sjá meira