Fótbolti

Henry í áfalli eftir val þjálfarans

Sindri Sverrisson skrifar
Amandine Henry hefur lengi verið í stóru hlutverki í franska landsliðinu. Hér er hún í baráttu við Dagnýju Brynjarsdóttur á EM 2017, áður en Henry fiskaði víti seint í leiknum með leikaraskap.
Amandine Henry hefur lengi verið í stóru hlutverki í franska landsliðinu. Hér er hún í baráttu við Dagnýju Brynjarsdóttur á EM 2017, áður en Henry fiskaði víti seint í leiknum með leikaraskap. Getty/Christopher Lee

Amandine Henry, liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Lyon og ein fremsta knattspyrnukona heims síðustu ár, er furðu lostin eftir að hún var ekki valin í franska landsliðið.

Þetta segir Olivier Blanc, stjórnandi hjá Lyon, í viðtali við heimasíðu félagsins.

Franska landsliðið mætir Norður-Makedóníu og Austurríki 23. og 27. október, í sömu undankeppni EM og Ísland mætir Svíþjóð í 27. október.

Henry, sem er 31 árs, hefur leikið 92 A-landsleiki og verið fyrirliði franska landsliðsins. Corinne Diacre, sem hefur verið landsliðsþjálfari Frakka frá 2017, ákvað hins vegar að velja aðra leikmenn og sagði Henry þurfa tíma til að komast í sitt besta ástand.

„Þetta er eitthvað sem að enginn bjóst við. Við erum öll furðu lostin og mjög vonsvikin fyrir hönd Amandine sem er einn reynslumesti leikmaður Lyon og franska landsliðsins þar sem hún er fyrirliði,“ sagði Blanc. 

„Þetta hafði mikil áhrif á hana“

Aðspurður hvað honum þætti um þau rök Diacre að Henry þyrfti tíma til að komast í sitt besta form svaraði hann:

„Það er hennar afstaða og við virðum hana þó að við séum ekki sammála. Amandine var meidd í upphafi tímabilsins en hún hefur byrjað síðustu þrjá leiki Lyon og Jean-Luc Vasseur [þjálfari Lyon] verið ánægður með hana. Hún er lykilmaður hjá Lyon og vann á ný allt sem hægt er að vinna með liðinu á síðustu leiktíð, og fyrir mér er hún lykilmaður í franska landsliðinu þar sem hún hefur verið fyrirliði.“

Henry verður því eftir í Lyon á meðan að Sara og margir aðrir liðsfélagar hennar fara í landsliðsverkefni í næstu viku. „Hún var mjög hissa og í áfalli yfir þessari ákvörðun og ég fann hvað þetta hafði mikil áhrif á hana því hún er mjög tengd franska landsliðinu eins og allir okkar frönsku leikmenn,“ sagði Blanc.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×