Barcelona nánast öruggt með annað sæti

Leikmenn Barcelona fagna marki frá Pierre Emerick Aubameyang í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna marki frá Pierre Emerick Aubameyang í kvöld. AFP/Lluis Gene

Barcelona vann í kvöld 3:1-heimasigur á Celta Vigo í 1. deild spænska fótboltans.

Memphis Depay kom Barcelona yfir á 30. mínútu og Pierre Emerick-Aubameyang bætti við öðru marki á 41. mínútu. Aubameyang var aftur á ferðinni á 48. mínútu með þriðja mark Barcelona.

Iago Aspas lagaði stöðuna fyrir Celta á 50. mínútu. Mörkin urðu hinsvegar ekki fleiri, þrátt fyrir að Jeison Murillo hjá Celta hafi fengið beint rautt spjald á 58. mínútu.

Real Madrid er í toppsæti deildarinnar með 81 stig og hefur þegar tryggt sér Spánarmeistaratitilinn. Barcelona er í öðru sæti með 72 stig og nægir einn sigur úr síðustu tveimur leikjunum til að gulltryggja annað sætið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert