Meintur ólöglegur ágóði Samherja sagður 4,7 milljarðar Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 22:42 Upphæðin af meintum ólöglegum ávinningi er fengin með því að umreikna 50 þúsund tonn af hrossamakrílskvóta. Vísir/Egill Meintur ólöglegur ágóði sem Samherji fékk af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda er metinn á um 4,7 milljarða íslenskra króna. Ríkisútvarpið greinir frá og hefur upp úr beiðni sem namibískur saksóknari hefur lagt fram fyrir dómstól í Namibíu.
Fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins að í beiðninni sé óskað eftir kyrrsetningu á eignum „fjölmargra félaga“ vegna rannsóknar á þessum hluta Samherjamálsins svokallaða. Af þessum félögum séu sex á vegum Samherja. Þá sé umrædd upphæð, 548 milljónir Namibíudollara eða 4,7 milljarðar íslenskra króna, fengin með því að umreikna 50 þúsund tonn af hrossamakrílskvóta yfir í markaðsvirði þess tíma á hrossamakríl. Samherji er sagður hafa fengið 50 þúsund tonninn út úr samningnum. Þá hefur Ríkisútvarpið upp úr eiðsvarinni yfirlýsingu Mörthu Imalwa saksóknara að Sacky Shanghala fyrrverandi dómsmálaráðherra Namibíu hafi fengið jafnvirði 217 milljóna króna í greiðslur frá félögum tengdum Samherja. Bernard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, hafi fengið jafnvirði um 100 milljóna króna, „en ekki kemur fram hvort það fé hafi allt komið frá Samherja,“ segir í frétt Ríkisútvarpsins. Alls nemi greiðslur frá félögum tengdum Samherja til fimm manna sem ákærðir eru í málinu í Namibíu um 1,46 milljarði íslenskra króna. Fjallað er um yfirlýsingu Imalwa á forsíðu dagblaðsins The Namibian sem kemur út á morgun. Headlines on tomorrow's front page: pic.twitter.com/QmRcVPCFAn— The Namibian (@TheNamibian) November 30, 2020 Rúmt ár er síðan ásakanir komu fram um að félög Samherja hefðu greitt embættismönnum í Namibíu mútur til að fá aðgang að aflaheimildum og komið fjármunum undan skatti í vetur. Samherji hafnar slíkum ásökunum alfarið.
Samherjaskjölin Namibía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Sjá meira