Enski knattspyrnudómarinn Anthony Taylor hljóp á sig þegar hann dæmdi leik Dynamo Kiev og Benfica í E-riðli Meistaradeildar Evrópu karla í gær.
Á 82. mínútu gaf hann miðjumanninum Denys Harmash sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Þar var einn hængur á; Harmash hafði aldrei fengið fyrra gula spjaldið í leiknum og átti því sannarlega ekki að fá reisupassann.
Taylor var gert viðvart um mistökin af aðstoðardómurum sínum og leiðrétti þau þá og Harmash fékk því að klára leikinn, sem endaði með markalausu jafntefli, með sitt eina gula spjald á bakinu.