Trump sektaður um meira en milljón króna Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2024 16:04 Donald Trump í dómsal í New York í morgun. AP/Justin Lane Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður um níu þúsund dali fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem dómarinn hafði beitt hann. Dómarinn varaði Trump við því að héldi hann áfram að brjóta gegn þagnarskyldunni gæti hann endað í fangaklefa.
Níu þúsund dalir samsvara tæplega 1,3 milljónum króna. Umrætt dómsmál er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og snýr í stuttu máli sagt að því þegar Cohen greiddi Daniels 130 þúsund dali skömmu fyrir forsetakosningarnar 2016. Greiðslunni var ætlað að koma í veg fyrir að Daniels segði frá meintu framhjáhaldi Trumps með henni á árum áður. Trump endurgreiddi Cohen en þær greiðslur voru skráðar í bókhald forsetans fyrrverandi sem lögfræðikostnaður og er hann sakaður um að hafa falsað skjöl í 34 liðum. Verði hann dæmdur sekur gæti hann verið dæmdur til allt að fjögurra ára fangelsisvistar. Juan M. Merchan, dómarinn í málinu, múlbatt Trump fyrst í mars og herti úrskurð sinn í upphafi apríl. Upprunalega bannaði dómarinn Trump að tjá sig um vitni, kviðdómendur og aðra sem tengjast réttarhöldunum en bætti svo dóttur sinni við listann, þar sem Trump hafði farið með falskar yfirlýsingar um hana á Truth Social. Síðan þá hefur Trump ítrekað látið reyna á múlinn, meðal annars með því að kalla vitni í málinu gegn sér „drulludela“. Merchan vísaði í dag til níu færslna á samfélagsmiðli Trumps, Truth Social, sem hann segir brjóta gegn þagnarskyldunni og skipaði hann forsetanum fyrrverandi að fjarlægja þær. Saksóknarar hafa bent Merchan á fjölda færslna sem þeir segja að fari gegn þagnarskyldunni og hafa þeir haldið því fram að ítrekuð brot Trumps ógni réttarhöldunum. Þeir bentu á fjórar nýjar færslur í morgun, en samkvæmt frétt New York Times á að taka þær fyrir í dag. Framboð Trumps hefur þegar sent út fjáröflunarpóst þar sem talað er um úrskurðinn í morgun. „Demókratadómari úrskurðaði gegn mér,“ segir í titli póstsins, samkvæmt AP fréttaveitunni. Þá stendur þar að „Demókratadómari“ hafi sagt Trump vanvirða réttinn og markmiðið sé að þagga niður í honum. „Standið með Trump,“ segir þar einnig og er fólk beðið um að senda forsetanum fyrrverandi peninga.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Tengdar fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. 25. apríl 2024 22:30 Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. 24. apríl 2024 07:28 Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. 22. apríl 2024 15:27 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Fleiri fréttir Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Sjá meira
Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. 25. apríl 2024 22:30
Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. 24. apríl 2024 07:28
Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. 22. apríl 2024 15:27